Breytt framsetning á grænmeti og fræðsla urðu til þess að grænmetisneysla í Rimaskóla jókst um 1.439 %. Það var Stella Björk Fjelsted, nemandi í Hagnýtri heilsueflingu á Menntavísindasviði Háskóla Íslands, sem komst að þessari niðurstöðu í heilsueflingarverkefni sem hún stóð fyrir í skólanum.
Agúrkur vinsælastar
Í verkefninu fólst að vigta allt grænmeti sem borið var fram í eina viku til að sjá hversu mikið börnin borðuðu. Næst fór Stella Björk og kynnti fæðuhringinn og mikilvægi grænmetisneyslu fyrir heilsu barna, í bekkjum skólans. Börnin voru líka hvött til að fá sér grænmeti og vera óhrædd við að smakka nýjar tegundir. Þar á eftir var allt grænmeti skorið í stærri bita í mötuneyti skólans og því ekki blandað saman. Í seinni mælingunni kom í ljós að neysla grænmetis á milli þessara tveggja vikna jókst úr rúmum þremur kílóum í nærri 47 kíló. Agúrkur voru vinsælasta grænmetið en einnig var mikil aukning í neyslu á papriku, aðallega rauðri. Agúrkur eru reyndar formlega taldar til ávaxta, en í daglegu máli eru gjarnan flokkaðar með grænmeti.
Í seinni mælingunni kom í ljós að neysla grænmetis á milli þessara tveggja vikna jókst úr rúmum þremur kílóum í nærri 47 kíló.
Rimaskóli í Grafarvogi er heilsueflandi grunnskóli með um 505 nemendur frá fyrsta upp í tíunda bekk. Verkefnið Heilsueflandi grunnskóli er á vegum Embætti landlæknis og felur í sér að styðja skóla í því að vinna að heilsueflingu í starfi sínu og skapa umhverfi sem stuðlar að vellíðan bæði nemenda og starfsfólks.