Göngugatan verður rauður dregill
Göngugatan á Laugavegi og Skólavörðustíg verður endurnýjuð með slitsterku og endingargóðu efni.
Á Laugavegi má segja að rauði dregillinn verði settur út fyrir vegfarendur en sett verður samskonar rautt efni á malbikaða hluta götunnar og er á strætóakreinum. Með þessu verður skýrari afmörkun á göngugötusvæðinu og umhverfið verður um leið hlýlegra. Á Skólavörðustíg heldur regnboginn sér með sínum litríku og táknrænu röndum.
Þetta efni sem nú er notað á að endast í nokkur ár og því verður ekki þörf á árlegum málningarframkvæmdum eins og verið hefur síðustu ár.
Fjórir áfangar
Verkefnið verður unnið í fjórum áföngum og er áætlað að hver taki einn til tvo daga í framkvæmd. Það tekur um það bil sex klukkustundir fyrir efnið að þorna en eftir það er óhætt að ganga á götunni.
-
Fyrsti áfangi - Laugavegur frá Bankastræti að Smiðjustíg (hlaupabrautin)
-
Annar áfangi - Laugavegur frá Smiðjustíg að Klapparstíg (parísinn)
-
Þriðji áfangi - Laugavegur frá Klapparstíg að Frakkastíg (gangbrautin)
-
Fjórði áfangi - Regnboginn á Skólavörðustíg
Tilkynnt með sólarhrings fyrirvara
Taka þarf tillit til veðurs og annarra aðstæðna við skipulagningu framkvæmdanna en sett verður út skilti við götuna með að minnsta kosti sólarhrings fyrirvara og tilkynnt um verkið á samfélagsmiðlum.
Einungis verður unnið á fjögurra metra breiðu svæði fyrir miðju götunnar. Vegfarendur eru velkomnir á hellulagða hluta götunnar, gangstéttina sjálfa, á meðan á framkvæmdunum stendur.
Sterk lykt er af efninu sem notað er sem varir aðeins á meðan unnið er að lagningunni.
Búið er að upplýsa nærumhverfið um fyrirhugaðar framkvæmdir.