Gengið til samninga við SSH um þjónustu við heimilislaust fólk

Samkvæmt nýlegri skýrslu búa 76 einstaklingar á höfuðborgarsvæðinu, utan Reykjavíkur, við heimilisleysi.
Tveir menn ganga í Reykjavík í haustsólinni

Velferðarráð samþykkti á fundi sínum í gær að velferðarsvið gangi til samninga við SSH (Samtök sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu) um aðkomu sveitarfélaganna að þjónustu Vettvangs- og ráðgjafarteymis Reykjavíkurborgar og mögulegri vetraropnun sérstaks neyðarskýlis.

Samkvæmt nýlegri skýrslu búa 76 einstaklingar á höfuðborgarsvæðinu, utan Reykjavíkur, við heimilisleysi.

Vettvangs- og ráðgjafarteymi Reykjavíkurborgar er þverfaglegt hreyfanlegt teymi sem veitir einstaklingum með miklar og flóknar þjónustuþarfir ráðgjöf og stuðning. VoR-teymið starfar meðal annars með fólki í neyðarskýlum, smáhúsum og í íbúðakjörnum. Teymið veitir einnig einstaklingum í sjálfstæðri búsetu stuðning og ráðgjöf í anda hugmyndafræðinnar um Húsnæði fyrst.

SSH hafði frumkvæði að aðkomunni, með erindi dagsettu 22. september 2023 frá samráðshópi SSH um velferðarmál. Þar var formlega óskað eftir því að önnur sveitarfélög á höfuðborgarsvæðinu gætu haft aðkomu að VoR-teyminu. Jafnframt kemur þar fram að sveitarfélögin tækju þátt í viðbótarkostnaði vegna opnunar gistiskýlanna sem þörf væri á yfir köldustu mánuðina.

Gerð krafa um jafna kostnaðarskiptingu

Áður en gengið verður til samninga mun eiga sér stað frekara samtal við samráðshóp SSH um velferðarmál um mögulega útfærslu á aðkomu sveitarfélaganna. Meðal annars þarf að skilgreina þá þjónustu VoR-teymið getur veitt eða óskað er eftir. Af hálfu Reykjavíkurborgar verður gerð krafa um að kostnaðarskipting við rekstur VoR-teymisins verði jöfn á milli sveitarfélaga og í samræmi við íbúahlutfall, eins og að jafnaði er gert í samvinnuverkefnum SSH. Kostnaðurinn sem miðað er við verði að endurspegla raunkostnað við þjónustu í málaflokknum.

Fagnar frumkvæði sveitarfélaganna

Rannveig Einarsdóttir, sviðsstjóri velferðarsviðs, fagnar samningaviðræðum við SSH og vonar að samningar náist um aðkomu sveitarfélaganna að þjónustunni. „Reykjavíkurborg hefur borið hitann og þungann af þjónustu við heimilislaust fólk með miklar og flóknar þjónustuþarfir. Ríkið hefur ekki lagt fram stefnu í málaflokknum, né hafa önnur sveitarfélög sett fram áætlanir um þjónustu við hópinn. Í því ljósi fögnum við þessu frumkvæði sveitarfélaganna,“ segir Rannveig.