Fullir salir af fólki á aðventustundum Þjóðleikhússins
Aðventustundir Þjóðleikhússins í samfélagshúsum, félagsmiðstöðvum, hjúkrunarheimilum og dagdvölum Reykjavíkurborgar hafa heldur betur slegið í gegn. Leikarar Þjóðleikhússins mæta á svæðið, leika og syngja. Sýningarnar eru öllum opnar en er ekki síst ætlaðar þeim sem eiga ekki eins hægt um vik og aðrir með að skella sér í leikhús.
Aðdraganda aðventustundanna má rekja til heimsfaraldurs Covid-19. Í desember árið 2020, þegar faraldurinn geisaði, fóru leikarar á Aðventubílnum um borgina og sungu fyrir utan félagsmiðstöðvar og hjúkrunarheimili til að létta íbúum lífið. Þá tókst á gott samstarf við velferðarsvið Reykjavíkur, sem sér um að skipuleggja viðburðina. Framlag leikaranna felst í að mæta á svæðið, með nauðsynlegan hljóðbúnað í för, syngja, leika og bera með sér jólagleði og stemningu. Sungin eru þekkt íslensk jólalög, farið með Skrögg í ljóðaformi og Jólakött Jóhannesar úr Kötlu og þá er flutt syrpa erlendra jólalaga.
Hver sýning er um hálftíma löng og hafa þær allar vakið mikla lukku. „Verkefnastjórar félagsmiðstöðva hafa verið afar ánægðir með þetta fyrir hönd síns fólks. Við höfum verið með fulla sali af geislandi glöðu fólki um alla borg,“ segir Þórhildur.
Myndirnar sem fylgja þessari umfjöllun eru frá aðventustund í samfélagshúsinu á Vitatorgi, þar sem þau Örn Árnason, Ilmur Kristjánsdóttir og Oddur Júlíusson skemmtu gestum. Enn er tími til að taka þátt í aðventugleðinni og öll eru velkomin á alla staði, óháð aldri. Sýningar verða fyrir og eftir hádegi á miðvikudag, fimmtudag og föstudag.
Næstu sýningar:
Miðvikudaginn 13. desember, klukkan 10.30, Virknimiðstöðin Iðjuberg, Gerðubergi 1.
Miðvikudaginn 13. desember, klukkan 12.30, fristunda- og félagsstarf í Árskógum 4.
Fimmtudaginn 14. desember, klukkan 10.30, jólamarkaður Virknimiðstöðvar í Borgarbókasafninu í Spönginni.
Fimmtudaginn 14. desember, klukkan 12.30, þjónustuíbúðir Furugerði 1.
Föstudaginn 15. desember, klukkan 10.30, Félagsmiðstöðin Borgir, Spönginni 43.
Föstudaginn 15. desember, klukkan 12.30, þjónustuíbúðir í Lönguhlíð.