Fjölbreytt og skemmtileg sumarstörf í boði í borginni
Reykjavíkurborg auglýsir tæplega eitt þúsund fjölbreytt og skemmtileg sumarstörf í ár og er lágmarksaldur umsækjenda 17 ár.
Störfin eru margvísleg og snerta daglegt líf borgarbúa með ýmsum hætti. Leitað er m.a. að sumarstarfsfólki til starfa í íbúðarkjarna, í neyðarskýlið á Grandagarði, í flokksstjórn, í fjölskyldu- og húsdýragarðinn, á Droplaugarstaði, í sorphirðuna, í götuleikhúsið og á hverfamiðstöðvarnar. Fjölbreytni í störfum er mikil hjá borginni og af nógu að taka.
Umsóknarfrestur í sumarstörf er til 5. mars næstkomandi en vakin er athygli á því að sum störf hafa lengri umsóknarfrest.
Sjá nánari upplýsingar um störfin á www.reykjavik.is/sumarstorf
Örnámskeið um atvinnuleit
Hitt húsið býður ungu fólki sem er í leit að sumarstarfi upp á frítt örnámskeið, Vinnubrögð, þar sem ungt fólk fær aðstoð við allt sem tengist atvinnuleit. Farið er yfir uppsetningu ferilskrár, gerð kynningarbréfs og veittar eru upplýsingar um möguleg sumarstörf. Námskeiðið er tilvalið fyrir þau sem eru í leit að vinnu og langar í góð ráð.
Námskeiðið verður haldið í Hinu húsinu við Rafstöðvarveg 7 – 9 þann 1. mars næstkomandi og rafrænt námskeið verður svo haldið 2. mars. Bæði námskeiðin eru klukkan 16 – 17.
Nánari upplýsingar og skráning á Vinnubrögð