Fjárhagsaðstoð og sérstakur húsnæðisstuðningur hækka
Borgarráð samþykkti í dag að breyta reglum um sérstakan húsnæðisstuðning sem felur í sér að einstaklingar geta fengið aukinn stuðning. Einnig samþykkti borgarráð í dag að hækka grunnfjárhæð fjárhagsaðstoðar til framfærslu um 5%.
Sérstakur húsnæðisstuðningur er fjárhagsleg aðstoð við fjölskyldur og einstaklinga á leigumarkaði sem þurfa sérstakan stuðning vegna greiðslu á húsaleigu umfram hefðbundnar húsnæðisbætur. Samþykkt var að hækka tekjumörk í reglum Reykjavíkurborgar til samræmis við breytingu á lögum um húsnæðisbætur. Hækkunin nemur 2,5% og gildir afturvirkt til 1. janúar 2023.
Eftir breytingarnar verða tekjumörkin eftirfarandi:
| Fjöldi heimilismanna |
Neðri tekjumörk á ári |
Efri tekjumörk á ári |
Neðri tekjumörk á mánuði |
Efri tekjumörk á mánuði |
|---|---|---|---|---|
| 1 | 5.388.983 | 6.736.228 | 449.082 | 561.352 |
| 2 | 7.127.364 | 8.909.204 | 593.947 | 742.434 |
| 3 | 8.344.232 | 10.430.289 | 695.353 | 869.191 |
| 4 eða fleiri | 9.039.585 | 11.299.480 | 753.299 | 941.623 |
Jafnframt var samþykkt að hækka hámark samanlagðra húsnæðisbóta og sérstaks húsnæðisstuðnings úr 90 þúsund krónum í 100 þúsund.
Grunnfjárhæð fjárhagsaðstoðar hækkar um 5%
Einnig samþykkti borgarráð í dag að hækka grunnfjárhæð fjárhagsaðstoðar til framfærslu um 5%. Fjárhagsaðstoð er fyrir einstaklinga og fjölskyldur sem ekki geta séð sér og sínum farborða án aðstoðar, með það að markmiði að styðja fólk til sjálfshjálpar og stuðla að því að geti framfleytt sér.
Grunnfjárhæð fyrir einstakling sem rekur eigið heimili hækkar úr 217.799 krónum á mánuði í 228.689 krónur á mánuði. Grunnfjárhæð til hjóna eða sambúðarfólks hækkar úr 348.476 í 365.902 krónur á mánuði. Grunnfjárhæð til einstaklings sem býr með öðrum, leigir húsnæði án þinglýsts leigusamnings eða hefur ekki aðgang að húsnæði hækkar úr 183.507 krónum í 192.682 krónur á mánuði. Grunnfjárhæð til þeirra sem búa í foreldrahúsum hækkar úr 108.898 í 114.345 krónur á mánuði.
Til viðbótar við grunnfjárhæð greiðir Reykjavíkurborg sérstaka fjárhagsaðstoð fyrir hvert barn sem er með lögheimili og á framfæri foreldris sem fær fjárhagsaðstoð til framfærslu. Sú fjárhæð hækkar úr 17.481 í 18.355 krónur á mánuði.
Gert er ráð fyrir að breytingarnar rúmist innan fjárheimilda ársins 2023.