Elskum plötubúðir - tónlistarveisla

Dóra og döðlurnar spiluðu á Óðinstorgi á Menningarnótt 2023
Dóra og döðlurnar héldu tónleika á Óðinstorgi á Menningarnótt 2023.

Elskum Plötubúðir er árleg tónlistarveisla á vegum Tónlistarborgarinnar Reykjavík, Sumarborgarinnar og plötubúða miðbæjarins þar sem gestum er boðið að njóta tónleika og rölta saman milli búðanna.

Dagskráin fer fram þann 26. ágúst í plötubúðunum Lucky Records, Reykjavík Record Shop, Smekkleysu og 12 Tónum. Plötubúðir miðbæjarins eru menningarverðmæti og hefur hver búð sína sögu sem er rótgróin og beintengd tónlistarsögu Reykjavíkur.

Tónlistarborgin Reykjavík býður fólk innilega velkomið, frítt inn!

Elskum plötubúðir - tónlistarveisla

 

Dagskrá:

14:00 – Lucky Records – Líkami

15:00 – Reykjavík Record Shop – Kristján Martinsson

16:00 – Smekkleysa – Virgin Orchestra

17:00 – 12 Tónar – Countess Malaise