Dagur íslenska fjárhundsins í Árbæjarsafni
Haldið verður upp á Dag íslenska fjárhundsins á Árbæjarsafni á morgun, þriðjudaginn 18. júlí.
Hægt verður að heilsa upp á hunda og eigendur þeirra sem glaðir svara öllum spurningum um hinn íslenska fjárhund. Hundarnir eru ljúfir og spakir og óhætt er að klappa þeim með leyfi eigenda.
Aðeins hundar sem taka þátt í kynningunni munu fá aðgang að safninu.
Þá munu Eyrún Ísfold Gísladóttir og Þóra Másdóttir, höfundar bókarinnar Lubbi finnur málbein, kynna fyrir gestum hinn íslenska fjárhund Lubba. Lubbi er duglegur að gelta og þá heyrist ,,voff - voff." En Lubba langar mikið til að læra að tala. Þá þarf hann að læra öll íslensku málhljóðin. Hann veit að þegar hann hefur lært þau öll losnar um málbeinið og hann getur leyst frá skjóðunni. Hann hefur örugglega frá mörgu að segja. Kannski börnin geti hjálpað Lubba að finna nokkur málbein?
Í haga er jafnframt að finna hesta, kindur, lömb og geitur. Landnámshænurnar vappa frjálsar um safnið og er helst að finna í kringum lokkandi ilminn í Dillonshúsi þar sem verður heitt á könnunni og heimilislegar veitingar.
Safnið er opið frá kl. 10 –17 en dagskráin hefst kl. 13.
Ókeypis aðgangur fyrir börn, öryrkja og menningarkortshafa.
Árbæjarsafn er hluti af Borgarsögusafni, eitt safn á fimm frábærum stöðum.
Öll velkomin!