Borgarstjóri Parísar sér mörg tækifæri til samstarfs eftir Reykjavíkurferð

Inga Dóra Sigfúsdóttir, stofnandi Planet Youth, Heiða Björg Hilmisdóttir, formaður velferðarráðs og Dagur B. Eggertsson, borgarstjóri funda með Anne Hidalgo borgarstjóra Parísar, ásamt aðstoðarfólki um forvarnir og skaðaminnkun.
Hópmynd í ráðhúsi Reykjavíkur

Borgarstjóri Parísar Anne Hidalgo kom í opinbera heimsókn til Reykjavíkur og kynnti sér forvarnarstarf og skipulagsmál í Reykjavík, starfsemi Orkuveitunnar og Carbfix, og fundaði með forsætisráðherra og Haraldi Þorleifssyni. Það kviknuðu margar hugmyndir um ný verkefni í ferðinni og var meðal annars ákveðið að fara í viðræður um samstarf Parísarborgar við Römpum upp Ísland.

Dagur B. Eggertsson segir það hafa verið mikinn heiður að taka á móti Anne Hidalgo borgarstjóra Parísar. „Við tókum við embættum á sama árið 2014 og höfum einkum hist í kringum fundi borgarstjóra um loftlagsmál en síðustu misseri hefur samstarfið orðið nánara og kynnin meiri eftir að ég tók við forystu í samstarfi borgarstjóra á vettvangi OECD sem Hidalgo leiddi áður.

Hidalgo og samstarfsfólk hennar nýttu tímann vel í sinni fyrstu opinberu heimsókn til Reykjavíkur þar sem þau kynntu sér meðal annars nýsköpun í loftslagsmálum með heimsókn í „hundrað ára nýsköpunarfyrirtækið Orkuveita Reykjavíkur“ og Carbfix, tóku þátt í umræðum um reynslu Reykjavíkurborgar í forvarnarmálum og lærðu um sérstök verkefni tengd skipulags- og aðgengismálum. Einnig fundaði Hidalgo með Katrínu Jakobsdóttur forsætisráðherra og Haraldi Þorleifssyni athafnamanni.

Dagur B. Eggertsson borgarstjóri og Anne Hidalgo borgarstjóri Parísar

Leiðandi í loftslagsmálum

Anne Hidalgo er á miðju öðru kjörtímabili sínu en Parísarbúar kjósa sér borgarstjóra til 6 ára í senn. „Anne hefur verið leiðandi í umbreytingu Parísar í græna átt og leiðandi umræðu um loftslagsmál alþjóðlega fyrir og eftir loftslagsfundinn í París 2015,“ segir Dagur. „Það var frábært að geta kynnt henni okkar grænu orku hjá Orkuveitu Reykjavíkur og nýjar loftslagslausnir hjá Carbfix á Hellisheiði, umbreytingu Reykjavíkur undanfarin ár, íslenska módelið í forvarnarstarfi fyrir ungt fólk og síðast en ekki síst verkefnið Römpum upp Reykjavík en ég hef haft milligöngu milli borgarstjóra Parísar og Haraldar Þorleifssonar athafnamanns með það markmið að við Römpum upp París í aðdraganda Ólympíuleikanna þar á næsta ári.“