Borgarstjórar sameinast um aðgerðaáætlun um hagkvæmari borgir og húsnæði fyrir alla
Dagur B. Eggertsson borgarstjóri leiddi fund Bandalags OECD borgarstjóra um hagvöxt fyrir alla í Efnahags- og framfarastofnuninni OECD í Brussel í gær þar sem undirrituð var sameiginleg aðgerðaráætlun um hagkvæmari borgir og húsnæði fyrir alla. Áætlunininni er ætlað að hraða aðgerðum í húsnæðismálum og létta þrýsting af völdum síhækkandi framfærslukostnaðar.
Dagur tók við formennsku af borgarstjóra Parísar, Anne Hidalgo, í júní á síðasta ári. OECD vinnur samkvæmt stefnu um hagvöxt fyrir alla, og bandalag borgarstjóra leggur áherslu á að auka samvinnu, efla stuðning við borgarstjórnir sem eru leiðandi öfl í samfélögum og auka þannig jöfnuð borgarbúa.
Samkvæmt gögnum OECD, hefur húsnæðisverð í OECD ríkjum hækkað um 77% á milli áranna 1996 og 2022, og ástandið hefur versnað mest í þéttbýli og borgum. Árið 2021 var hús í þéttbýli að meðaltali um 50% dýrara en hús úti á landi í dreifbýli.
Samkvæmt gögnum OECD, hefur húsnæðisverð í OECD ríkjum hækkað um 77% á milli áranna 1996 og 2022, og ástandið hefur versnað mest í þéttbýli og borgum.
Markmið fundar Bandalags borgarstjóra OECD sem borgarstjóri stýrði í gær var að finna leiðir til að taka höndum saman um þær sameiginlegar áskoranir sem borgir um allan heim glíma við og þá sérstaklega vegna hækkunar á framfærslukostnaði og skorts á húsnæði. Yfir 60 borgarstjórar undirrituðu aðgerðaráætlunina sem miðar að samræmdum aðgerðum til bregðast við þessari þróun.
Dagur segir að það hafi verið óvæntur heiður að vera beðinn um að leiða þetta viðamikla samstarf borgarstjóra á vettvangi OECD. „Það var ánægjulegt að á þessum fundi hafi áherslan verið á mjög praktíska hluti sem allar borgir glíma við: að bæta húsnæðismarkaðinn, fjölga íbúðum og sérstaklega íbúðum á viðráðanlegu verði, auk glímunnar við afleiðingar verðbólgu og hárra vaxta sem heimili og fyrirtæki um allan heim takast nú á við." Hann sagði borgarstjórana hafa samþykkt sameiginlega sýn og ákall um hvað gera þurfi, byggða á fjölmörgum dæmum um hvað vel hefur verið gert og greiningum á stöðunni. "Mjög margt í þeim tillögum kallast á við uppbygginguna í Reykjavík síðustu ár. Eitt af lykil svörunum er að ráðast í enn frekari uppbyggingu.”
Eitt af lykil svörunum er að ráðast í enn frekari uppbyggingu.
Fundur borgarstjóranna í Brussel var haldinn í tengslum við stærsta borgarleiðtogafund í heimi, Brussels Summit en OECD er eitt þriggja samtaka sem standa að honum. Yfir 2.000 þátttakendur frá 600 borgum, þar af 130 borgarstjórar hvaðanæva að úr heiminum, koma þar saman á ráðstefnu til að deila reynslu sinni og forgangsraða mikilvægustu verkefnum til að bæta borgarsamfélög og líf borgarbúa.