Árétting vegna umfjöllunar um aðkomu Barnaverndar Reykjavíkur að aðfararmáli Sýslumannsins á höfuðborgarsvæðinu

Yfirlitsmynd yfir Reykjavík

Í tilefni af frétt em birtist á vef DV, miðvikudaginn 29. nóvember, þar sem voru miklar rangfærslur og starfsmaður Barnaverndar Reykjavíkur var nafngreindur, vill velferðarsvið Reykjavíkurborgar koma eftirfarandi á framfæri: 

Aðfarargerðirí Reykjavík eru á forræði Sýslumannsins á höfuðborgarsvæðinu, sem framkvæmir þær í kjölfar niðurstöðu dómstóla á grundvelli barnalaga. Barnavernd kemur ekki að ákvörðunartöku í aðfararmálum. Samkvæmt barnalögum boðar sýslumaður fulltrúa barnaverndar á staðinn og er hlutverk þeirra að gæta hagsmuna barns. Í því felst að reyna að tryggja að aðstæður hafi sem minnst álag í för með sér fyrir barnið. Barnavernd hefur enga heimild til að stöðva aðgerð eða breyta ákvörðun dómstóla.

Rétt er að árétta að allar ákvarðanir varðandi vinnslu barnaverndarmála í Reykjavík eru teknar í teymum og staðfestar af yfirmönnum. Enginn einn einstaklingur stendur að baki þeim eða ræður för.