Víetnam Market innkallar Lucky Me núðlusúpur

Pancit Canton núðlur.

Vietnam Market, hefur í samráði við Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur,  stöðvað sölu og innkallað frá neytendum Instant Noodles Pancit Canton og Beef Mami Instant Noodle Soup frá Lucky Me! Þetta er þriðja verslunin sem innkallar núðlusúpurnar en áður hafa Filipino Store og Dai Phat Trading Inc ehf. , stöðvað sölu vörunnar.

Ástæða innköllunar er að varnarefnið ethylene oxíð var notað við framleiðslu á innihaldsefnum sem síðan voru notuð við framleiðslu á vörunni.  Ethylene oxíð er ekki leyfilegt til notkunar við framleiðslu matvæla í Evrópu.

Ethylene oxíð hefur ekki bráða eiturvirkni en efnið hefur erfðaeituráhrif (getur skaðað erfðaefnið) og getur því haft skaðleg áhrif á heilsu.

Upplýsingar um vöru sem innköllunin einskorðast við:

  • Vörumerki: Lucky Me!
  • Vöruheiti: Instant Noodles Pancit Canton (Original Flavor, Chilli, Calamansi, Chillimansi), og Beef Mami Instant Noodle Soup
  • Geymsluþol: Best fyrir  Dagsetning: Allar lotur/dagsetningar
  • Nettómagn: 60 g og 55 g
  • Framleiðandi: Monde Nissin Thailand Co. LTD.
  • Framleiðsluland: Tæland

 

Það er Vietnam Market ehf., Suðurlandsbraut 6, 108 Reykjavík sem innkallar og vöruna og dreifir henni í verslunum á Laugavegi 86-94 og Bankastræti 11 í Reykjavík.

Viðskiptavinir sem keypt hafa ofangreinda vöru eru beðnir um að neyta hennar ekki og farga en einnig má skila henni gegn endurgreiðslu í verslanir Vietnam Market að Laugavegi 86-94 og Bankastræti 11.

Nánari upplýsingar má nálgast í verslunum Vietnam Market, Laugavegi 86-94 og Bankastræti 11, í síma 847 4245 eða í tölvupósti: info@vy.is.