Viðburðapottur Sumarborgarinnar 2022

Mannlíf Menning og listir

Sumarborgin

Auglýst er eftir umsóknum um styrki úr Viðburðapotti Sumarborgarinnar til verkefna og viðburða í miðborg Reykjavíkur í sumar. 

Viðburðapottur Sumarborgarinnar 2022

Markmið Sumarborgarverkefnisins er að efla og mannlíf og menningu og styðja þannig við fyrirtæki; verslun, veitingastaði og aðra þjónustu á svæðin. Undanfarin ár hefur Viðburðapotturinn verið undirstaða skemmtilegra uppákoma í miðborginni til að mynda Sumarmatstöðurnar, Dansinn með Kramhúsinu, Götubitahátíðin, grænmetismarkaðir, pop–up tónleikar og fleira sem styður við líflegt borgarumhverfi og starfsemi á svæðinu.

Sumarborgin auglýsir eftir umsóknum um styrki til verkefna sem stuðla að samstarfi borgar og aðila í miðborginni og gerir þeim kleift að skipuleggja m.a. viðburði og uppákomur sem hvetja borgarbúa og aðra gesti til að upplifa miðborgina og njóta alls þess sem hún hefur uppá að bjóða.

Helstu skilyrði fyrir styrkveitingu:

  • Verkefnið skal glæða borgina lífi og varpa ljósi á fjölbreytileika miðborgarinnar, ekki er verra ef hugsað viðburða sem fara fram á nýjum svæðum (s.s. Steinbryggjan, torg við Tollhúsið, Óðinstorg ofl) sem og viðburða er höfða til ungra gesta miðborgarinnar.
  • Verkefnið skal vera samstarfsverkefni hið minnsta tveggja aðila.
  • Verkefnið skal fara fram á tímabilinu frá júní 2022 – ágúst 2022.
  • Margir fái að njóta og sé þátttakendum að kostnaðarlausu.

Framkvæmdir tengdar húsnæði, innan- eða utanhúss, verða ekki styrktar, né markaðssetning einstaka reksturs. Ekki eru veittir styrkir vegna Menningarnætur úr þessum potti en bent er á Menninganæturpott Landsbankans.

Hægt er að sækja um styrk að hámarki 500.000 kr.

Skriflega umsókn skal senda sem viðhengi á netfangið midborgin@reykjavik.is og skal sameina umsókn og fylgigögn í eitt pdf-skjal, sé um fleiri en eitt skjal að ræða.

Í umsókn skal koma fram:

  • Nafn umsækjanda, kennitala, netfang og símanúmer
  • Samstarfsaðilar verkefnisins
  • Upphæð sem sótt er um
  • Nákvæm lýsing á verkefni og markmið þess
  • Tímarammi verkefnisins
  • Fjárhagsáætlun verkefnisins

Umsóknarfrestur er til og með 19. maí 2022.