Víðavangshlaup ÍR á sumardaginn fyrsta
Á sumardaginn fyrsta fer Víðavangshlaup ÍR fram í miðborginni en hlaupið er jafnframt Íslandsmeistaramót í 5 km götuhlaupi. Götulokanir verða í gildi á tímabilinu 10:30 - 13:15 í kringum Pósthússtræti, Lækjargötu frá Bankastræti, Fríkirkjuvegi, Sóleyjargötu, Skothúsvegi og Tjarnargötu.
Á sumardaginn fyrsta, fimmtudaginn 21. apríl, fer fram eitt fjölmennasta 5 km hlaup landsins í hjarta borgarinnar og liggur hlaupaleiðin um miðbæinn. Víðavangshlaup ÍR er eitt af örfáum götuhlaupum landsins þar sem götum er lokað og hlauparar fá tækifæri til að leggja þær óáreittir undir sig.
Flestir bestu hlauparar landsins taka þátt og búast má við harðri baráttu um sæti og tíma. Samhliða Víðavangshlaupinu fer jafnframt fram 2,7 km skemmtiskokk. Skemmtiskokkið er frábær skemmtun fyrir foreldra og börn sem vilja gera sér glaðan dag og fagna sumri með því að hlaupa saman. Öll börn sem ljúka hlaupi fá sumarglaðning að loknu hlaupi.
Götulokanir
Götulokanir verða í gildi í miðborginni frá klukkan 10:30 - 13:15 í kringum Pósthússtræti, Lækjargötu frá Bankastræti, Fríkirkjuvegi, Sóleyjargötu, Skothúsvegi og Tjarnargötu.Óhjákvæmilega verður truflun á umferð í miðbænum á meðan á viðburðinum stendur. Sjá kort neðst.
Víðavangshlaup ÍR hefst stundvíslega kl. 12 og skemmtiskokkið 10 mínútum síðar. Víðavangshlaupið verður ræst í Pósthússtrætinu en skemmtiskokkið fyrir framan MR í Lækjargötu. Endamark er í Pósthússtrætinu.
Fjölskyldur eru hvattar til að taka sig saman og fjölmenna í þennan einstaka viðburð sem ekki hefur fallið niður í rúma öld. Allar upplýsingar ásamt skráningu má nálgast á vidavangshlaup.is og er hægt að skrá sig til kl. 11 á hlaupadag.