Verklok við Litluhlíð nú ætluð í júlí
Verkið í Litluhlíð tafðist miðað við upphaflega áætlun vegna þess að bætt var við nauðsynlegum framkvæmdum vegna breytinga á stórum flutningsæðum hitaveitu, sem fara um svæðið.
Þessum breytingum var ekki hægt að ljúka fyrir veturinn vegna þess að ekki var heimilt að stöðva rennsli í hitaveitulögnum sem þjóna stórum hluta Reykjavíkur. Af þessum sökum var verkið stöðvað í þrjá mánuði.
Framkvæmdum á vegum Veitna lýkur á næstu dögum í Litluhlíð. Dýpkað verður fyrir háspennustreng og lágspennustreng sem liggur meðfram Litluhlíðinni norðanverðri verður skeytt saman og mokað yfir strengina.
Verktaki vinnur að yfirborðsfrágangi og býst við að ljúka gerð malbikaðra stíga í næstu viku. Hann hefur fjarlægt vinnubúðir sínar af svæðinu. Þá tekur við landmótun og gróðursetning og steypa á gangstétt meðfram Litluhlíð.
Samkvæmt verkáætlun verktaka sem lögð var fram í febrúar á verkinu að ljúka fyrir 10. júlí.
Göngu- og hjólastígur
Verkefnið er samstarfsverkefni Reykjavíkurborgar, Veitna og Vegagerðar. Verktaki er Háfell ehf. og hönnun er unnin af VSÓ Ráðgjöf. Hér er um að ræða framhald á lagningu göngu-og hjólastígs sem kominn er meðfram Bústaðavegi og mun svo halda áfram eftir Skógarhlíð.
- Gerð verða undirgöng fyrir gangandi og hjólandi undir Litluhlíð ásamt tengingu stíga við Eskitorg og Bústaðaveg.
- Gerður verður göngu- og hjólastígur sem tengir stíga sem komnir eru við Bústaðaveg við Skógarhlíð.
- Til að undirgöngin verði sem styst verður önnur akbraut Litluhlíðar, þ.e. sú eystri, þrengd í eina akrein og miðeyja mjókkuð.
- Umferðaröryggi gönguleiðar yfir Bústaðaveg verður bætt með því að stýra umferð sem tekur hægribeygju frá Bústaðavegi inn í Litluhlíð með umferðarljósum.
- Sett verður lýsing við götu, stíga og í undirgöngum.
- Breyting verður á umferðarljósum ásamt skiltum og merkingum.
- Veitur endurnýja stofnæðar hitaveitu, vatnsveitu, fráveitu og rafveitu á svæðinu.
- Frágangur umhverfisins með gróðursvæðum og landmótun.