Vel sótt sumarhátíð Reykjavíkurborgar
Fjöldi starfsmanna Reykjavíkurborgar kom í Fjölskyldu- og húsdýragarðinn í dag en þar var haldin sumarhátíð fyrir allt starfsfólk. Með hátíðinni vildi Reykjavíkurborg sýna táknrænt þakklæti fyrir undanfarin misseri.
Þetta er í fyrsta sinn sem slík hátíð er haldin og um skipulagninguna sá mannauðs- og starfsþróunarsvið Reykjavíkurborgar. Aðgangur var ókeypis fyrir starfsfólk og fjölskyldur þeirra en jafnframt var frítt inn fyrir alla sem lögðu leið sína í garðinn. Boðið var upp á veitingar og skemmtiatriði.
Tónlistarmenn sem komu fram voru meðal annarra, Salka Sól Eyfeld, Jón Jónsson, Emmsjé Gauti og Júróvisjónsystur. Leikhópurinn Lotta var með skemmtiatriði, og leikarar úr Ávaxtakörfunni sungu nokkur lög.
Vítt og breitt um garðinn var svo boðið upp á alls kyns skemmtun og afþreyingu og meira að segja ísbjörn og pandabjörn voru á gangi í garðinum. Leiktækin voru vinsæl og mynduðust langar biðraðir við tækin, en allt gekk vel fyrir sig.
Skemmtileg stemning var í garðinum og sólin skein.
Takk fyrir komuna!