Upplausn á auglýsingaskiltum

Menning og listir

Verk, sem nú eru sýnd á yfir 350 skjáum um alla borg, bæði skjáum í strætóskýlum og stórum auglýsingaskjáum við fjölfarnar götur, heitir Upplausn og er eftir listamanninn Hrafnkel Sigurðsson.

Billboard, sem rekur auglýsingaskjái í strætóskýlum og við gatnamót á höfuðborgarsvæðinu, efndi síðastliðið haust til opinnar samkeppni um myndlistarverk í almannarými í samstarfi við Listasafn Reykjavíkur og Y gallerí.

Listamaðurinn, Hrafnkell Sigurðsson, var valinn úr hópi yfir 50 umsækjenda en reikna má með að yfir 80% höfuðborgarbúa muni sjá verk hans dagana 1.–5. janúar í strætóskýlum borgarinnar. Hrafnkell lýsir verkinu, sem hann kallar Upplausn/Resolution, svona: "Verkið er abstrakt, það er ekki beint sýnilegt samhengi við umhverfið, það fer út úr öllu samhengi. Það er aftengt heiminum eins og við þekkjum hann".

Listamaðurinn fær 1.000.000 kr greiddar fyrir verkið sem verður að sýningartíma loknum gefið í safneign Listasafns Reykjavíkur. Jafnframt er stefnt að því að verkið verði áfram sýnilegt í almenningsrými í borginni. Verkefninu er ætlað að lýsa upp skammdegið og gefa fólki tækifæri á að njóta listar um alla borg.