Um hundrað milljónir króna til félaga sem starfa að velferðarmálum

Styrkjanefndin ásamt fulltrúum Hlutverkaseturs.

Í heild hljóta 35 samtök styrk úr borgarsjóði til að vinna að verkefnum á sviði velferðarmála á árinu 2022. Velferðarráði bárust 53 umsóknir um styrkina, að upphæð rúmlega 306 milljónir króna.

Heildarfjárheimild til ráðstöfunar var rúmlega 108 milljónir króna. Hluta þeirrar upphæðar er haldið eftir, til að bregðast við óvæntum aðstæðum sem upp koma á árinu. Upphæðin sem úthlutað var nú rétt tæpar 100 milljónir króna.

Það er velferðarráð sem veitir hagsmuna- og félagasamtökum styrkina úr borgarsjóði. Styrkjanefndina í ár skipuðu þær Heiða Björg Hilmisdóttir, formaður velferðarráðs, Ragnhildur Alda Vilhjálmsdóttir, fulltrúi í velferðarráði og Kristjana Gunnarsdóttir, skrifstofustjóri skrifstofu ráðgjafarþjónustu á velferðarsviði. Við mat á umsóknum var meðal annars horft til þess hvort starfsemi félagsins væri í samræmi við stefnur og áherslur velferðarráðs, hvort áhersla væri lögð á forvarnir og valdeflingu notenda, hvort unnið væri gegn fátækt og hvort umsóknin falli að mannréttindastefnu Reykjavíkurborgar. Út frá þeim forsendum voru gefin stig og heildarstigafjöldi hafður til hliðsjónar við ákvörðun um styrkveitingu.

Í hópi þeirra samtaka sem fá styrk til að vinna að sínum verkefnum í ár eru bæði ný og rótgróin samtök sem vinna á einn eða annan hátt að velferðarmálum. Vegna fjöldatakmarkana var ekki hægt að halda athöfn fyrir alla styrkhafa, eins og venjan er. Fyrr í dag afhenti Heiða Björg Hilmisdóttir hins vegar nokkrum félagasamtökin styrki. Viðstaddir voru fulltrúar þeirra þriggja félagasamtaka sem fengu stærstu þjónustusamningana til þriggja ára – Samhjálpar, Hlutverkaseturs og Hjálpræðishersins en öll eru þau félög rótgróin á sínu sviði. Auk þeirra voru fulltrúar þeirra samtaka sem hlutu hæsta almenna styrkinn viðstaddir. Hann fengu samtökin Memmm Play fyrir foreldrastundir sínar. Í gegnum það verkefnið býðst foreldrum og forsjáraðilum að hittast, leika, fræðast og njóta samveru með börnum sínum. Markmið Fjölskyldustunda Memmm Play er að bjóða foreldrum og ungum börnum þeirra fjölskylduvæna aðstöðu til þess að leika og hitta aðrar fjölskyldur ásamt því að fá fræðslu og stækka tengslanet sitt og barna sinna.

Eftirfarandi félög og verkefni fengu almennan styrk:

Allir hjóla, félagasamtök – Allir hjóla 

600.000 kr.

Alþjóða geðheilbrigðisdagurinn – Alþjóða geðheilbrigðisdagurinn

200.000 kr.

Brynhildur Björnsdóttir – Venjulegar konur

500.000 kr.

Einhverfusamtökin – fræðsla um einhverfu til skóla, starfsendurhæfinga og annarra stofnana

1.000.000 kr.

Fjölskylduhjálp Íslands – Hringrásarbanki Fjölskylduhjálpar Íslands

1.000.000 kr.

ADHD samtökin – ráðgjöf og stuðningur við fólk með ADHD

2.000.000 kr.

Memmm Play, félagasamtök – foreldrastundir Memmm Play

4.000.000 kr.

Gigtarfélag Íslands – ráðgjöf, félagstarf, valdefling og stuðningur við gigtarfólk og aðra með annan stoðkerfisvanda í Reykjavík

1.000.000 kr.

Hjálparstarf kirkjunnar – Sumarfrí innanlands

500.000 kr.

Hjálparstarf kirkjunnar – Taupokar með tilgang

600.000 kr.

Höndin – stuðningur við skjólstæðinga Handarinnar

300.000 kr.

Rauði krossinn á höfuðborgarsvæðinu – Frú Ragnheiður

500.000 kr.

Samtök um kvennaathvarf – áfangaheimili Kvennaathvarfsins – þýðingar nauðsynlegra skjala

400.000 kr.

Samvera og súpa, félagasamtök – Samvera og súpa

300.000 kr.

Vinaskákfélagið – Skákiðkun

200.000 kr.

Þjónustusamningar til eins árs 2022:

Afstaða til ábyrgðar – þjónustusamningur við Afstöðu.

4.000.000 kr.

Bergið Headspace – félagasamtök – Bergið Headspace

3.000.000 kr.

Blindrafélagið – stuðningur til sjálfstæðis

3.000.000 kr.

EAPN á Íslandi, samtök gegn fátækt – Fjölskyldu- og fjölmenningarsetur

2.000.000 kr.

Félag heyrnarlausra – þjónusta við heyrnarlausa íbúa Reykjavíkur

4.000.000 kr.

Félag eldri borgara í Reykjavík og nágrenni – Jaðarsettir minnihlutahópar 60+

2.000.000 kr.

Foreldrahús ses – Fjölskylduráðgjöf foreldrahúss

4.500.000 kr.

Hugarafl – Notendastýrt félagsstarf byggt á valdeflingu

5.500.000 kr.

MS-félag Íslands – ráðgjafarþjónusta

2.000.000 kr.

Píeta Samtökin, félagasamtök – Þjónusta við fólk í sjálfsvígshættu, aðstandendur þeirra og syrgjendur

3.000.000 kr.

Rótin – félag um velferð og lífsgæði kvenna – fræðsla, ráðgjöf, útgáfa og þjálfun

2.500.000 kr.

Vernd, fangahjálp – Endurhæfing/Betra líf

1.500.000 kr.

Þjóðkirkjan / Biskupsstofa – Skjólið  – opið hús fyrir konur

2.000.000 kr.

Þjónustusamningar til þriggja ára:

AE starfsendurhæfing ehf. – Hlutverkasetur

10.000.000 kr.

Hjálparstarf kirkjunnar – Út úr vítahring fátæktar og félagslegrar einangrunar. Hjálp til sjálfshjálpar

2.500.000 kr.

Hjálpræðisherinn á Íslandi – Samskonar

15.000.000 kr.

Landssamtökin Geðhjálp – Ósk um rekstrarstyrk

2.000.000 kr.

Samhjálp, félagasamtök – Kaffistofa Samhjálpar

10.000.000 kr.

Sjálfsbjörg, félag hreyfihamlaðra – Félagsstarf, ráðgjöf.

1.000.000 kr.

Styrktarfélag klúbbsins Geysis – virkniverkefni fyrir einstaklinga með geðrænar áskoranir sem búa í búsetukjörnum og búsetuendurhæfingarheimilum í Reykjavík.

5.000.000 kr.