Turninn á Lækjartorgi verður hljómturn
Eitt helsta kennileiti miðbæjarins, gamli turninn á Lækjartorgi, verður miðpunktur tónlistar eða hljómturn. Turninn var auglýstur til leigu og hefur tilboði Guðfinns Sölva Karlssonar verið tekið. Í turninum verða seldar plötur og hann verður líka upplýsinga- og kynningarmiðstöð á íslenskri tónlist.
Hljómturninn verður opinn gestum og gangandi sem geta kíkt við, kynnt sér og verslað íslenska tónlist. Leigutaki mun hafa það að leiðarljósi að gæða miðborgina enn meira lífi. Hljómturninn verður áfangastaður fyrir áhugafólk og unnendur tónlistar, jafnt heimamenn og ferðamenn.
Guðfinnur Sölvi ætlar sér að auka lýsingu í turninum og turninn verður málaður að nýju. Hugmyndin er að ljós verða kveikt allan sólarhringinn þannig að það sést innum gluggana á öllum tímum dagsins, allan ársins hring.
Söluturninn á Lækjartorgi var reistur árið 1907 en tíu árum síðar fór hann á flakk og stóð lengst af á horni Kalkofnsvegar og Hverfisgötu. Árið 1972 eignaðist borgin turninn en það var ekki fyrr en 2010 sem hann fékk aftur sinn sess á Lækjartorgi.
Leigusamningur er ótímabundinn og gagnkvæmur uppsagnarfrestur er þrír mánuðir. Leigusamningurinn gildir frá og með 10. apríl nk.