Tímamót í skipun stjórna einkaréttarlegra fyrirtækja borgarinnar 

Stjórnsýsla

Ráðhús Reykjavíkur með rauðum og grænum jólaljósum

Borgarráð samþykkti í gær tillögur tilnefninganefndar um stjórnir einkaréttarlegra fyrirtækja borgarinnar. Tillögurnar taka mið af nýrri eigandastefnu þar sem áhersla er lögð á góða stjórnarhætti og þverpólitíska samstöðu. 

Tillögurnar taka til skipan í stjórnir Orkuveitu Reykjavíkur, Félagsbústaða hf. og Faxaflóahafna sf. og hefur þeim verið vísað til borgarstjórnar sem mun taka þær fyrir á fundi næstkomandi þriðjudag. Kosning í fimm manna stjórn Félagsbústaða kallar á breytingu á samþykktum.  

Samkvæmt eigandastefnunni skal í vinnu tilnefninganefndar litið til þess að stjórn, nefnd eða ráð sé hverju sinni saman sett af einstaklingum í sem jöfnustum kynjahlutföllum, sem hafa breiða þekkingu og bakgrunn, svo sem með tilliti til aldurs og reynslu, sem nýtist viðkomandi fyrirtæki og eftir atvikum hagaðilum þess hverju sinni, og sé litið til hlutverks og verkefna fyrirtækisins, rekstrar þess og framtíðarsýnar. Við kosningu í stjórnir einkaréttarlegra fyrirtækja skal miðað við að meirihluti stjórnarmanna sé óháður fyrirtækinu og stjórnendum þess. 

Þórdís Lóa Þórhallsdóttir forseti borgarstjórnar segir ákvörðun borgarráðs marka tímamót. „Ný eigandastefna markar nýja tíma þar sem borgin innleiðir góða stjórnarhætti og armslengdarsjónarmið við tilnefningar í stjórnir fyrirtækjanna í þverpólitísku samráði. Það er lögð áhersla á fagleg vinnubrögð, gegnsæi og aukna upplýsingamiðlun.” 

Stjórn Faxaflóahafna: 

Þórdís Lóa Þórhallsdóttir, formaður 

Hildur Björnsdóttir 

Már Másson – óháður 

Ragnheiður H. Magnúsdóttir – óháð 

Varamenn: Friðjón Friðjónsson, Pawel Bartoszek, Íris Baldursdóttir – óháð, Sigurbjörg Ásta Jónsdóttir – óháð 

Stjórn Félagsbústaða: 

Kjartan Magnússon 

Magnús Davíð Norðdahl

Ellý Alda Þorsteinsdóttir – óháð 

Haraldur Flosi Tryggvason, formaður – óháður 

Ragnheiður Björk Halldórsdóttir – óháð 

Varamenn: Helgi Áss Grétarsson, Rannveig Ernudóttir, Kolbrún Garðarsdóttir – óháð, Steinunn Bergmann – óháð, Arent Orri Jónsson 

Stjórn Orkuveitu Reykjavíkur: 

Skúli Þór Helgason 

Ragnhildur Alda Vilhjálmsdóttir 

Gylfi Magnússon, formaður – óháður 

Vala Valtýsdóttir, varaformaður – óháð 

Þórður Gunnarsson – óháður 

Varamenn: Björn Gíslason, Sara Björg Sigurðardóttir, Auður Hermannsdóttir – óháð, Páll Gestsson  - óháður, Ragnheiður Björk Halldórsdóttir - óháð 

Brynhildur Davíðsdóttir fráfarandi formaður stjórnar Orkuveitu Reykjavíkur gaf ekki kost á sér í endurkjör.