Tilnefningar til Evrópsku kvikmyndaverðlaunanna
Evrópska kvikmyndaakademían tilkynnti í dag hverjir eru tilnefndir í aðalflokkum Evrópsku kvikmyndaverðlaunanna en þau verða haldin hér á landi í Hörpu,10. desember næstkomandi. Mikill heiður fylgir því að fá að halda hátíðina en annað hvert ár er hún haldin í Berlín en þess á milli í öðrum evrópskum borgum.
Tilnefningar kynntar með íslensku myndbandi
Er þetta í 35. skipti sem kvikmyndaverðlaunin eru haldin og að því tilefni var í fyrsta sinn ákveðið að kynna tilnefningar með myndbandi. Íslenski leikstjórinn Arnar Helgi Atlondres var fenginn til að framleiða myndbandið þar sem Ísland spilar stórt hlutverk ásamt tónlist eftir tónskáldið Atla Örvarsson.
Stjörnufans í Hörpu á verðlaunaafhendingu
Margir þekktir leikstjórarar og leikarar munu sækja landið heim þegar verðlaunaafhendingin fer fram í desember. Má þar nefna spænsku leikkonuna Penélope Cruz sem er tilnefnd sem besta leikkonan fyrir Parallel Mothers, breska leikarann Kenneth Branagh sem er tilnefndur fyrir besta handritið fyrir BELFAST og sænski leikstjórinn Ruben Östlund sem er tilnefndur fyrir bestu evrópsku kvikmyndina, besta leikstjórann og besta handritið fyrir kvikmyndina Triangle of Sadness.
Til gamans má geta er leikarinn Elliott Crosset Hove tilnefndur sem besti evrópski leikarinn fyrir leik sinn í kvikmyndinni GODLAND eftir íslenska leikstjórann Hlyn Pálmason.
Nóvember er tileinkaður evrópskri kvikmyndagerð en allar kvikmyndirnar sem eru tilnefndar sem besta kvikmynd til Evrópsku kvikmyndaverðlaunanna verða sýndar í Bíó Paradís. Einnig verða sérstakar spurt og svarað sýningar með heiðursverðlaunahöfum, ásamt fjölda sérviðburða í Bíó Paradís. Sýningarnar munu fara fram aðdraganda verðlaunanna. Hægt er að kynna sér dagskrána á bioparadis.is.
Tilnefningar eru eftirfarandi:
Besta evrópska kvikmyndin:
- ALCARRÀS, leikstjóri Carla Simón, framleidd af María Zamora, Stefan Schmitz, Tono Folguera og Giovanni Pompili. (Spánn/Ítalía)
- CLOSE, leikstjóri Lukas Dhont, framleidd af Michiel Dhont, Dirk Impens, Michel Saint-Jean, Laurette Schillings, Arnold Heslenfeld, Frans van Gestel og Jacques-Henri Bronckart (Belgía/Frakkland/Holland)
- CORSAGE, leikstjóri Marie Kreutzer, framleidd af Alexander Glehr, Johanna Scherz, Bernard Michaux, Jonas Dornbach, Janine Jackowski, Maren Ade & Jean-Christophe Reymond (Austurríki/ Luxemburg/ Þýskaland/Frakkland)
- HOLY SPIDER, leikstjóri Ali Abbasi, framleidd af Sol Bondy & Jacob Jarek (Danmörk/Þýskaland/ Svíþjóð/ Frakkland)
- TRIANGLE OF SADNESS, leikstjóri Ruben Östlund, framleidd af Erik Hemmendorff & Philippe Bober (Svíþjóð/ Þýskaland/ Frakkland/ Bretland)
Besta evrópska heimildamyndin:
- A HOUSE MADE OF SPLINTERS, leikstjóri Simon Lereng Wilmont (Danmörk/ Svíþjóð/ Finnland/ Úkraína)
- GIRL GANG, leikstjóri Susanne Regina Meures (Sviss)
- MARIUPOLIS 2, leikstjóri Mantas Kvedaravičius (Litháen/ Frakkland/ Þýskaland)
- THE BALCONY MOVIE, leikstjóri Paweł Łoziński (Pólland)
- THE MARCH ON ROME, leikstjóri Mark Cousins (Ítalía)
Besti evrópski leikstjórinn:
- Lukas Dhont fyrir CLOSE
- Marie Kreutzer fyrir CORSAGE
- Jerzy Skolimowski fyrir EO
- Ali Abbasi fyrir HOLY SPIDER
- Alice Diop fyrir SAINT OMER
- Ruben Östlund fyrir TRIANGLE OF SADNESS
Besta evrópska leikkonan:
- Vicky Krieps fyrir CORSAGE
- Zar Amir Ebrahimi fyrir HOLY SPIDER
- Léa Seydoux fyrir ONE FINE MORNING
- Penélope Cruz fyrir PARALLEL MOTHERS
- Meltem Kaptan fyrir RABIYE KURNAZ VS. GEORGE W. BUSH
Besti evrópski leikarinn:
- Paul Mescal fyrir AFTERSUN
- Eden Dambrine fyrir CLOSE
- Elliott Crosset Hove fyrir GODLAND
- Pierfrancesco Favino fyrir NOSTALGIA
- Zlatko Burić fyrir TRIANGLE OF SADNESS
Besta evrópska handritið:
- Carla Simón og Arnau Vilaró fyrir ALCARRÀS
- Kenneth Branagh fyrir BELFAST
- Lukas Dhont og Angelo Tijssens fyrir CLOSE
- Ali Abbasi og Afshin Kamran Bahrami fyrir HOLY SPIDER
- Ruben Östlund fyrir TRIANGLE OF SADNESS
Evrópska kvikmyndaakademían leitast við að styðja og tengja saman 4.400 meðlimi sína ásamt því að kynna verk þeirra. Markmiðið er að miðla þekkingu og fræða áhorfendur á öllum aldri um evrópska kvikmyndagerð.