Þróunarverkefni fyrir einstaklinga með heilabilunarsjúkdóm að hefjast

Þróunarverkefni um félagslegan stuðning við einstaklinga með heilabilunarsjúkdóm er að hefjast.

Um þessar mundir er að hefjast tveggja ára þróunarverkefni um félagslegan stuðning við einstaklinga með heilabilunarsjúkdóm og fjölskyldur þeirra. Um 30 einstaklingar geta tekið þátt á hverjum tíma. Félagslegur stuðningur verður veittur innan eða utan heimilis í eitt til tvö skipti í viku, um kvöld og helgar allt eftir þörfum fjölskyldunnar.

Um leið og stuðningur verður veittur einstaklingi með heilabilun gefst aðstandendum hans kostur á að fara út af heimilinu og sinna hugðarefnum sínum með þá vissu að hann sé í öruggum höndum. Með því móti er vonast til þess að hægt verði að létta álagi af heimilum og bæta lífsgæði fjölskyldunnar. 

Á undanförnum árum hefur velferðarsvið Reykjavíkurborgar komið á fót sérhæfðum þjónustuúrræðum, bæði í öldrunarþjónustu og og öðrum fjölbreyttum verkefnum, sem miða að því að gera eldra fólki kleift að búa sem lengst á heimilum sínum. Þróunarverkefnið um félagslegan stuðning við einstaklinga með heilabilunarsjúkdóm og fjölskyldur þeirra er af því tagi en borgarráð samþykkti í október síðastliðnum að hefja það. Velferðarsvið fékk aukna fjárheimild upp á 36 milljónir króna á árinu 2022 til verkefnsins. 

Þau sem eiga lögheimili í Reykjavík, búa sjálfstætt, eru greind með heilabilunarsjúkdóm og þurfa á félagslegum stuðningi að halda á kvöldin og/eða um helgar geta sótt um þátttöku í verkefninu. Horft er til fjölbreytni í vali á þátttakendum í verkefnið. Horft er til aldurs umsækjenda, fjölskyldustöðu, búsetu, virkni og annarra sjúkdóma. 

Auglýst er eftir þátttakendum í verkefnið og er umsóknarfrestur til 20. febrúar 2022. Hægt er að sækja um og fá nánari upplýsingar á vef Reykjavíkurborgar á vefslóðinni www.reykjavik.is/throunarverkefni