Taka fyrstu skrefin til sjálfstæðs lífs í nýjum íbúðakjarna í Breiðholti

Einar og Ellen fyrir framan heimili hans.

Í fyrrasumar flutti fyrsti íbúinn inn í nýjan og vel búinn íbúðakjarna velferðarsviðs í Breiðholti. Þar eru aðstæður eins og best verður á kosið fyrir sex unga einstaklinga með fatlanir sem flestir eru að stíga sín fyrstu skref í búsetu. Þeir búa sjálfstætt og haga sínu lífi eftir eigin hentisemi en fá stuðning starfsfólks sem hefur aðsetur í starfsmannaíbúð í sömu blokk.

Flestir eru íbúarnir ungt fólk sem var með flutningunum að taka sitt fyrsta skref í átt að auknu sjálfstæði. „Þetta hefur gengið mjög vel, að mínu mati, þó að það hafi eðlilega komið upp ýmsar áskoranir. Oft eru það sömu eða svipuð úrlausnarefni sem þarf að leysa. Það þarf til dæmis að búa til dagskrá sem hentar hverjum og einum, til að geta haldið skipulagi í hversdeginum,“ segir Ellen Björg Björnsdóttir, forstöðumaður íbúðakjarnans.

Einn íbúa íbúðakjarnans er Einar Freyr Jónasson en hann er sá eini sem ekki var að flytja úr foreldrahúsum þegar hann flutti í kjarnann. Áður bjó hann í öðrum íbúðkjarna í miðbæ Reykjavíkur en hann er afar ánægður með breytinguna. „Mér finnst betra að vera hér heldur en í miðbænum. Ég var orðinn leiður á að búa þar en svo ólst ég líka upp hér í Breiðholtinu, svo mér fannst gott að koma hingað,“ segir Einar. Þá sé staðsetningin þægileg því hann sé nær vinnunni sinni í Ásgarði í Mosfellsbæ.

Talsverð uppbygging hefur verið á íbúðakjörnum fyrir fatlað fólk í Reykjavík á undanförnum árum. Íbúðakjarninn í Breiðholti var einn fjögurra sem opnaður var í fyrra. Það sem af er árinu 2022 hafa þrír kjarnar verið opnaðir, auk þess að nýtt húsnæði var tekið í notkun á tveimur íbúðakjörnum. 

Þjónustan veitt inni á heimilum fólks

Þegar Einar tekur á móti gestunum til að veita viðtal er hann með háa og hressa tónlist á spænsku í gangi í stórum hátölurum. Á eldhúsborðinu er kennslubók í spænsku, en hann hefur verið að leggja sig fram við að læra hana að undanförnu. „Ég lærði nokkur tungumál í framhaldsskóla, til dæmis þýsku, en ég náði ekki alveg að halda mig við hana. Mér finnst spænska líka erfið en þó ekki eins erfið og þýskan,“ segir hann.

Með reglubundnum hætti, samkvæmt áætlun, lítur Ellen eða annað starfsfólk kjarnans við hjá Einari. Stuðningurinn sem hann fær fer að mestu leyti fram í íbúð Einars, í stað þess að hann sæki þjónustu eða félagsskap í starfsmannaíbúð. Þjónustan við okkar notendur fer að langmestu leyti fram í þeirra íbúðum. Með því viljum við auka sjálfstæði þeirra og styðja þau í sínu verkefni við að búa sjálfstætt. Þeir geta síðan sjálfir ákveðið hverja af hinum notendunum þeir vilja blanda geði við, rétt eins og ég og þú.“

Starfsfólk með fjölbreytta reynslu

Á kjarnanum starfa fjórtán starfsmenn. Auk þess að veita íbúum margvíslegan stuðning veita þeir þrettán öðrum einstaklingum sem búa víðs vegar um Breiðholt svokallaða utankjarnaþjónustu. „Þar er um einstaklinga að ræða sem búa sjálfstætt í íbúðum frá Félagsbústöðum, þurfa ekki sólarhringsþjónustu en þó stuðning af ýmsu tagi. Við lítum inn hjá þeim í um það bil tvær klukkustundir í senn, tvisvar í viku.“

Ellen er afar ánægð með starfsmannahópinn sinn, sem hún segir búa yfir fjölbreyttri reynslu og menntun. Mismunandi styrkleikar fólks nýtist vel, enda sé hópurinn sem fær þjónustu líka breiður og ólíkur innbyrðis. Sjálf er hún tómstunda- og félagsmálafræðingur með meistaragráðu í stjórnun og þjónandi forystu frá Bifröst. Hún segir áherslur þess náms nýtast henni vel í starfi og smitast bæði til starfsfólks og íbúa. „Það má segja að þarna sé valdapýramídanum snúið á hvolf. Þannig er ég að vinna fyrir mitt starfsfólk og reyni að gera því kleift að vera leiðtogar í sínum störfum. Það tekur ábyrgð, finnur að það hafi tilgang og það veitir svo gleði við að mæta í vinnuna. Starfsmenn styðja síðan við íbúana að gera slíkt hið sama – fá hlutverk, taka ábyrgð og upplifa tilgang.“