Sundlaugarnar í Reykjavík opna aftur á morgun

Laugardalslaug að vetri.

Laugardalslaug verður opnuð fyrir gesti klukkan 7 í fyrramálið og aðrar sundlaugar Reykjavíkurborgar opna klukkan 11:30 á morgun, miðvikudaginn 21. desember. Ylströndin opnar á hefðbundnum tíma eða klukkan 11:00.

Loka varð sundlaugunum í Reykjavík og Ylströndinni mánudaginn 19. desember vegna bilunar í Hellisheiðarvirkjun. Þó að viðgerðum hafi lokið í morgun var áframhaldandi skerðing til sundlauga á höfuðborgarsvæðinu til að vinna upp vatnsforða sem er mikilvægt til að Veitur geti annað fullri eftirspurn í þessari kuldahríð.

Það verður óbreytt skerðing til klukkan 6 í fyrramálið og verður þá hægt að byrja að hita upp laugar og potta. Innilaugin í Laugardalslauginni hefur ekki kólnað mikið í lokuninni og þar er hægt að hita heitu pottana frekar hratt svo hún verður opnuð fyrir morgunsund strax klukkan 7. Útilaugin verður í kaldara lagi. Aðrar sundlaugar Reykjavíkurborgar opna fyrir hádegi, klukkan 11:30, og ætti þá að vera komin góður hiti í vatnið en þar gildir það sama og í Laugardalnum að útilaugarnar verða í kaldara lagi fram eftir degi. Sjósundsáhugafólk og aðrir geta svo notið pottaaðstöðunnar við Ylströndina í Nauthólsvík frá klukkan 11:00 sem er hefðbundinn opnunartími.