Styrkir til að efla hverfisanda, mannlíf og menningu
Auglýst er eftir verkefnum og viðburðum sem auka mannlíf, menningu, félagsauð og lífsgæði í hverfum borgarinnar. Mikilvægt er að verkefnin höfði til allra aldurshópa og skírskoti til breiðs hóps fólks sem vill sækja sér afþreyingu og upplifun í sínu hverfi.
Umsóknarfrestur er frá 8. apríl – 24. apríl 2022 og fær hvert verkefni á bilinu kr. 50.000 til 500.000 í styrk. Einstaklingar, félagasamtök eða aðrir hópar sem vinna saman að einstöku verkefni geta sótt um styrk í sjóðinn.
Hér er t.d. átt við uppákomur vegna 17. júní hátíðarhalda í hverfunum, Viðburði, markaði, tónleika, listviðburði, leiki, hreinsunar- eða gróðursetningu á opnum svæðum í hverfinu. Allt þetta og önnur verkefni sem auka samveru og hverfavitund.
Styrkþegar skulu þegar við á sækja um nauðsynleg leyfi fyrir framkvæmd verkefnis, t.d. notkun á borgarlandi og uppsetningu mannvirkja. Styrknum er ekki ætlað að koma í stað launa heldur vegna efniskostnaðar, kaupa á listviðburðum, kostnaði við leiðbeinendur, auglýsingakostnað eða veitingar.
Skipting styrkja eftir hverfum
Sjóðurinn nemur alls 30 milljónum króna. Miðað er við að íbúaráð sem eru níu talsins, fái milljón hvert en afgangurinn deilist til íbúaráða eftir íbúafjölda hverfanna.Styrkirnir skiptast á eftirfarandi hátt á milli íbúaráða borgarinnar;
| íbúaráð Árbæjar- og Grafarholts | kr. 2.790.000 |
| íbúaráð Breiðholts | kr. 4.450.000 |
| íbúaráð Grafarholts og Úlafarsárdals | kr. 2.290.000 |
| Íbúaráð Grafarvogs | kr. 3.830.000 |
| Íbúaráð Kjalarness | kr. 1.150.000 |
| Íbúaráð Háaleitis- og Bústaðahverfis | kr. 3.470.000 |
| Íbúaráð Laugardals | kr. 3.850.000 |
| Íbúaráð Miðborgar og Hlíða | kr. 4.450.000 |
| Íbúaráð Vesturbæjar | kr. 3.620.000 |
Nánari upplýsingar á heimasíðu og frekari leiðbeiningar eru veittar hjá starfsmönnum mannréttinda- og lýðræðisskrifstofu: hverfissjodur@reykjavik.is