Streymisfundur um deiliskipulagstillögu um Arnarnesveg
Tillaga að nýju deiliskipulagi Arnarnesvegar verður kynnt á streymisfundi klukkan 17:00 fimmtudaginn 3. mars en frestur til að senda athugasemdir hefur verið framlengdur til 11. mars.
Deiliskipulagstillagan nær til hluta Arnarnesvegar, nýs vegar með tveimur akreinum í hvora átt, göngu- og hjólastíga, ásamt tveimur nýjum hringtorgum, frá gatnamótum Arnarnesvegar og Rjúpnavegar að fyrirhuguðum gatnamótum Breiðholtsbrautar og Arnarnesvegar og veghelgunarsvæða hans sem nær að jafnaði 30 metra út frá miðlínu vegarins.
Hægt er að kynna sér tillöguna á vefjum Reykjavíkurborgar og Kópavogsbæjar og senda fyrirspurnir fyrirfram á netfangið: skipulag@reykjavik.is eða skipulag@kopavogur.is. Leitast verður við að svara þeim á fundinum. Einnig verður hægt að senda fyrirspurnir á meðan streyminu stendur.
Að fundinum standa Reykjavíkurborg, Kópavogsbær og Vegagerðin en auk fulltrúa þeirra verða á fundinum fulltrúar verkfræðistofunnar Eflu sem er ráðgjafi deiliskipulagsins.
Frestur til að skila athugasemdum
Frestur til að senda athugasemdir hefur verið framlengdur til 11. mars. Skila ber athugasemdum á skipulag@reykjavik.is eða skipulag@kopavogur.is eða bréflega.