Staða verkefna í samgöngusáttmálanum kynnt

Á meðal þess sem verður fjallað um á fundinum er uppbygging göngu- og hjólastíga á höfuðborgarsvæðinu. Arctic Images/Ragnar Th.
Fólk á hjóli á stíg við sjóinn. Esjan í bakgrunni.

Vegagerðin heldur morgunfund um sögu og stöðu verkefna á vegum samgöngusáttmálans næstkomandi þriðjudag, 15. febrúar kl. 9.00-10.15.  Þar verða meðal annars kynntar stofnvegaframkvæmdir árið 2022, verkefni er varða Borgarlínu og uppbygging göngu- og hjólastíga á höfuðborgarsvæðinu.

Fundinum verður streymt á vef Vegagerðarinnar og Facebook stofnunarinnar. Hægt verður að senda inn spurningar á Sli.do. Lykilorðið er „sattmali“. Fundurinn verður einnig haldinn í húsnæði Vegagerðarinnar, Suðurhrauni 3 í Garðabæ. Opið er meðan húsrúm leyfir og það verður heitt á könnunni.  

Dagskrá

  • Bergþóra Þorkelsdóttir, forstjóri Vegagerðarinnar, setur fundinn.
  • Davíð Þorláksson, framkvæmdastjóri Betri samgangna: Samgöngusáttmálinn. Aðdragandi og þýðing hans.
  • Bryndís Friðriksdóttir, svæðisstjóri höfuðborgarsvæðis Vegagerðarinnar: Stofnvegaframkvæmdir 2022 og verkefni varðandi Borgarlínuna. 
  • Katrín Halldórsdóttir, verkfræðingur hjá höfuðborgarsvæði Vegagerðarinnar: Uppbygging göngu- og hjólastíga á höfuðborgarsvæðinu. Hvar verða næstu stígar lagðir?
  • Bergþóra Kristinsdóttir, framkvæmdastjóri þjónustusviðs Vegagerðarinnar: Umferðarflæði og umferðarljósastýringar.  

Um samgöngusáttmálann 

Samgöngusáttmálinn var gerður milli ríkis og sveitarfélaganna sex á höfuðborgarsvæðinu haustið 2019. Markmiðið með honum er að auka umferðaröryggi, bæta samgöngur fyrir alla ferðamáta og minnka tafir, stórefla úrval ferðamáta, draga úr mengun af völdum svifryks og losun gróðurhúsalofttegunda til að standa við loftslagsmarkmið stjórnvalda og sveitarfélaga. Í því felst að byggja upp góða og örugga stofnvegi, byggja upp net hjóla- og göngustíga sem tengja saman sveitarfélög og hverfi, vinna að undirbúningi Borgarlínunnar og stýra flæði umferðar.  

Betri samgöngur ohf. hafa yfirumsjón og eigendaeftirlit með uppbyggingu samgöngumannvirkjanna, auk þess að tryggja fjármögnun. Vegagerðin annast undirbúning, hönnun og verklegar framkvæmdir á vegum samgöngusáttmálans í góðu samstarfi við sveitarfélögin á höfuðborgarsvæðinu.