Skólaganga barna hælisleitenda og flóttafólks tryggð
Alþjóðateymi velferðarsviðs Reykjavíkurborgar tók til starfa í janúar á þessu ári og starfa undir því tvö teymi, annað sem þjónustar umsækjendur um alþjóðlega vernd og hitt sem þjónustar flóttafólk sem hefur fengið réttarstöðu flóttafólks og kemur í samræmda móttöku flóttafólks, en teymið er nefnt SAMFLÓ.
Teymið sem þjónustar umsækjendur um alþjóðlega vernd í Reykjavik veitir í dag 68 börnum undir 18 ára aldri þjónustu. Þar af eru 27 grunnskólabörn.
Í teyminu um samræmda móttöku þar sem eru börn með réttarstöðu flóttafólks, SAMFLÓ, eru skráð 220 börn undir 18 aldri og þar af eru 149 börn á grunnskólaaldri.
Öll börn sem eru í þjónustu hjá Alþjóðateymi Reykjavikurborgar eru því skráð í skóla enda er skólaskylda bundin í lög.
Eins og staðan er í dag kemur gríðarlegur fjöldi fólks til landsins og fær réttarstöðu flóttafólks tiltölulega fljótt, er hér sérstaklega vísað til flóttafólks frá Úkraínu og Venesúela. Fólkið fær þó ekki varanlegt húsnæði strax en þrátt fyrir það vinnur starfsfólk í Alþjóðateymi Reykjavíkurborgar hratt í því að skrá börn í grunnskóla Reykjavíkur til að þau geti hafið skólagöngu sem allra fyrst. Meðalbiðtími þeirra barna er sjö til tíu dagar frá því að þau koma í þjónustu Reykjavíkurborgar þar til þau hefja skólagöngu í grunnskóla.
Þegar Reykjavíkurborg tekur á móti nýjum fjölskyldum eru heimavitjanir og viðtöl við félagsráðgjafa mjög fljótlega hjá báðum teymum, teymi um umsækjendur um alþjóðlega vernd og SAMFLÓ. Í heimavitjun og viðtölum er a.m.k. safnað saman upplýsingum um hagi, líðan og þarfir barna og fjölskyldna. Upplýsingar um fyrri skólagöngu barna og ungmenna eru fengnar og sendar á tengilið skóla- og frístundasviðs Reykjavíkurborgar með ósk um skólavist fyrir börnin.
Eitt af sérstökum úrræðum sem Reykjavíkurborg býður upp á er stoðdeildin Birta, sem er skólaúrræði fyrir börn sem eru í umsóknarferli um alþjóðlega vernd á Íslandi í 3. – 10.bekk. Deildin hóf formlega starfsemi sína í ágúst 2019 undir stjórn Álftamýrarskóla með aðsetur í frístundaheimilinu Álftabæ. Síðastliðið vor var ákveðið að starfsemin yrði flutt í rýmra húsnæði við Seljaskóla og er deildin með aðstöðu í Vinaseli, frístundaheimili fyrir 1. og 2.bekk nemenda við Seljaskóla.
Í byrjun skólaárs 2022 setti Reykjavikurborg á laggirnar úrræði í Vesturbænum sem miðar að því að tryggja að börn, sem dvelja á Hótel Sögu, fái skólagöngu. Öll börn sem eru í þjónustu hjá Alþjóðateymi Reykjavikurborgar eru því skráð í skóla enda er skólaskylda bundin í lög.