Sendum Úkraínu birtu og yl

Ráðhúsið lýst með jólaljósum og frost yfir Tjörninni.

Á morgun, miðvikudaginn 21. desember klukkan 19 verður slökkt á jólaljósum Oslóartrésins og jólalýsingu í Ráðhúsi í fimm mínútur til þess að sýna Úkraínu samkennd.

Þetta er táknrænn viðburður þar sem víða í Evrópu verður slökkt á jólalýsingu til stuðnings Úkraínu sem nú auk stríðsátaka er fást við mikinn vetrarkulda. Rússar hafa með árásum sínum eyðilagt um helming orkuveitna landsins og talið er að um tíu milljónir íbúa Úkraínu séu án hita og rafmagns.

Þátttökuþjóðir munu slökkva á lykiljólalýsingum borga klukkan 19 að staðartíma og sýna með því stuðning auk þess að vekja athygli á aðstæðum úkraínsku þjóðarinnar. Með þessu er verið að senda Úkraínu stuðning, birtu og yl með táknrænum hætti.

Samkvæmt úkraínska utanríkisráðuneytinu hefur vissan um stuðning annarra þjóða mikla þýðingu fyrir úkraínsku þjóðina sem berst nú fyrir lífi sínu eftir innrás Rússa og erfið stríðsátök.