Samkomulag við barnavinafélagið Sumargjöf
Samkomulagið snýr að erfðafestulandi sem Sumargjöf á við Suðurlandsbraut en gert er ráð fyrir að Borgarlínan liggi í gegnum landið.
Dagur B. Eggertsson borgarstjóri og Kristín Hagalín Ólafsdóttir formaður stjórnar barnavinafélagsins Sumargjafar undirrituðu í dag samkomulag sem gerir ráð fyrir að lóðarmörkum Steinahlíðar þar sem Reykjavíkurborg rekur leikskóla verði breytt. Sumargjöf á landið sem er erfðafestuland en fyrirhuguð er Borgarlínustöð í Vogabyggð og mun fyrsti áfangi Borgarlínunnar fara í gegnum landið.
Ekki er búið að útfæra nákvæmlega hvar Borgarlínan mun liggja í landinu en hönnun, greiningarvinna og útfærslur á einstaka hlutum, t.d. gatnamótum, götusniðum og gangbrautum stendur yfir.
Land Steinahlíðar við enda Suðurlandsbrautar er með miklum trjágróðri og túnum og áformar Sumargjöf að skipuleggja landið þannig að það nýtist betur til barnvænnar starfsemi og útivistar. Þá hafa bæði Sumargjöf og Reykjavíkurborg áhuga á því að fjölga leikskólaplássum á svæðinu.
Í samkomulaginu er gengið út frá þeirri forsendu að Borgarlínan fari nærri eða yfir lóð Steinahlíðar og þaðan yfir Sæbrautarstokk.
Ef Borgarlínan fer lítillega yfir lóð Steinahlíðar mun Reykjavíkurborg tryggja Sumargjöf sambærilegt aðliggjandi land að stærð og gæðum þannig að félagið sé eins sett eftir skiptin. Reykjavíkurborg getur breytt lóðamörkum Sumargjafar um allt að 5,000 fermetra.
Stefnt er að því að gera Steinahlíð og lóðina umhverfis að grænum unaðsreit með aukinni áherslu á ýmis konar ræktun; trjárækt, garðrækt og matjurtarækt. Þá verði Steinahlíð opin almenningi sem gróðurvin og útivistarsvæði að því marki sem leikskólastarfið leyfir.
Sérstakt samkomulag verður gert um kostnaðarþátttöku borgarinnar í tengslum við þróun lóðarinnar.