Samhæfingarhópur um móttöku flóttafólks
Borgarráð samþykkti í dag, 17. mars, að mynda sérstakan samhæfingarhóp sem heldur utan um móttöku borgarinnar við flóttafólk og vinnu sérstaks aðgerðarhóps. Aldrei hafa jafnmargir einstaklingar og nú verið á flótta vegna stríðsátaka og ofsókna í heiminum frá því að seinni heimsstyrjöldinni lauk vorið 1945.
Fyrirsjáanlegt er að umsækjendum um alþjóðlega vernd á Íslandi muni fjölga verulega ekki síst frá Úkraínu. Reykjavíkurborg býr að dýrmætri reynslu af móttöku flóttafólks og er eitt þriggja sveitarfélaga sem á fulltrúa í samráðshópi ríkislögreglustjóra sem er að undirbúa aðgerðir til að taka á móti flóttafólki frá Úkraínu.
Tryggja þarf aðgengi flóttafólks í íslenskt samfélag og stuðla að því að samfélagið komi til móts við þarfir þess. Huga þarf að húsnæðismálum, skólagöngu, framfærslu, heilbrigðisog velferðarþjónustu og áfallaaðstoð, frístundum og félagslegri samveru svo eitthvað sé nefnt. Best er að sem mest samráð verði við flóttafólkið sjálft.
Veita á þjónustuna í nærumhverfi flóttafólksins og munu þjónustumiðstöðvar borgarinnar vera í lykilhlutverki með samstarfi við stofnanir og félagasamtök.
Samhæfingarhóp og aðgerðarhóp er ætlað að;
- Undirbúa Reykjavíkurborg sem móttökusveitarfélag í samræmi við samning Reykjavíkurborgar við félags- og vinnumarkaðsráðuneytið um samræmda móttöku flóttafólks frá Úkraínu. - Aðgerðarhópur.
- Fá yfirsýn yfir núverandi stöðu flóttafólks í þjónustu hjá Reykjavíkurborg, m.a. með tölfræðigögnum. – Aðgerðarhópur.
- Gera sviðsmyndir byggðar á þeirri reynslu sem Reykjavíkurborg hefur fengið af móttöku flóttafólks. - Samhæfingarhópur.
- Endurskoða gildandi móttökukerfi fyrir flóttafólk hjá Reykjavíkurborg og tilkostnað í ljósi reynslunnar af samningi við félags- og vinnumarkaðsráðuneytið frá febrúar 2021. – Samhæfingarhópur.
- Undirbúa aðgerðir sem tryggja þjónustu við flóttafólk. Í því felst m.a. útvegun húsnæðis, kennsla fyrir börn á grunnskólaaldri, leikskólapláss, félagslegur stuðningur og leiðbeiningar fyrir frístunda-, tónlistar- og íþróttaþátttöku og eftir atvikum atvinnuþátttöku. – Aðgerðarhópur.
- Skipuleggja fræðslu fyrir starfsfólk Reykjavíkurborgar sem kemur að móttöku flóttafólks. - Aðgerðarhópur
- Efla samstarf við félagasamtök sem veita stuðning til flóttafólks, s.s. Rauða Krossinn og félag Úkraínumanna á Íslandi. – Aðgerðarhópur.
Samhæfingarhóp skipa: Dagur B. Eggertsson borgarstjóri, formaður Regína Ásvaldsdóttir sviðsstjóri velferðarsviðs, varaformaður Þorsteinn Gunnarsson borgarritari, Helgi Grímsson sviðsstjóri skóla- og frístundasviðs, Óli Jón Hertervig skrifstofustjóri skrifstofu eigna- og atvinnuþróunar og Eva Bergþóra Guðbergsdóttir teymisstjóri samskiptateymis á skrifstofu borgarstjóra og borgarritara.
Með samhæfingarhópnum starfi Jasmina Vajzovic Crnac leiðtogi alþjóðateymis velferðarsviðs og formaður aðgerðarhóps. Hópurinn mun leita ráðgjafar þvert á öll svið borgarinnar og utan borgarkerfisins hjá aðilum sem hafa sérþekkingu á viðfangsefninu. Haft verði samráð við helstu hagsmunaðila þar sem við á. Samhæfingarhópurinn tekur til starfa í dag 17. mars og starfar eins lengi og þörf er á.