Reykjavíkurborg á HönnunarMars 2022
Leikjahönnun, kúltúrhakk og pottaspjall er á meðal þeirra erinda sem flutt verða á málþingi um þjónustuhönnun í starfsemi Reykjavíkurborgar sem fram fer í Kaldalóni í Hörpu fimmtudaginn 5. maí milli klukkan 14 og 16. Málþingið er framlag Reykjavíkurborgar á Hönnunarmars 2022 auk sýningarinnar.
Fjallað verður um þjónustuhönnun sem er notuð í umbreytingaverkefnum innan borgarinnar. Erindin sem flutt verða eru afar fjölbreytt og fjalla m.a. um hvernig bregðast á við samfélagsbreytingum í opinberri þjónustu, samtali við notendur þjónustu, þjónustuhönnun bókasafns og fleira. Í lok málþingsins fara fram pallborðsumræður um þjónustuhönnun hjá hinu opinbera. Þátttakendur í pallborðinu eru Dagur B. Eggertsson, borgarstjóri, Paul Bennett, listrænn stjórnandi IDEO, og Ragnheiður H. Magnúsdóttir, framkvæmdastjóri Maggar.
Dagskrá málþings:
1. Að spyrja og prófa
Árni Jónsson, forstöðumaður Laugardalslaugar og Guðrún Lilja Gunnlaugsdóttir, deildarstjóri miðlunar og nýsköpunar á Borgarbókasafninu segja frá hvernig hægt er að bregðast við örum samfélagsbreytingum í opinberri þjónstu og umhverfi hennar.
2. „Mér finnst svo gott þegar þú spyrð mig hvernig mér líður í vinnunni“
Halla María Ólafsdóttir, verkefnastjóri, og Eva Jakobsdóttir, þjónustuhönnuður, unnu saman að umbreytingu á þjónustu skóla- og frístundasviðs. Samstarfið varð til þess að brjóta niður veggi milli sviða og stuðla að nýrri sýn á þjónustu og vinnulag.
3. Spjallað í pottinum
Búi Bjartmar Aðalsteinsson, þjónustuhönnuður, segir frá vinnu við að bæta þjónustu á Ylströndinni og mikilvægi samtals við notendur.
4. „Næsasta bókasafn í lífinu!“
Hvernig verður bókasafn næs? Unnar Geir Unnarsson, deildarstjóri Borgarbókasafnsins í Úlfarsárdal, segir frá nýjasta bókasafni borgarinnar og hvernig starfsfólk nýtir sér meðal annars aðferðir þjónustuhönnunar.
5. Hönnuð hönnun (og Hanna nú!)
Már Örlygsson viðmótssérfræðingur ræðir hvernig kerfisbundin hönnun flýtir framkvæmd, lækkar kostnað, eykur gæði og aðgengileika rafrænnar þjónustu hjá Reykjavíkurborg.
6. Ráðgjafinn
Ráðgjafinn er ný lausn fyrir íbúa og starfsfólk í velferðarþjónustu borgarinnar. Styrmir Erlingsson, framkvæmdastjóri rafrænnar þjónustumiðstöðvar Reykjavíkurborgar, fjallar um þróun lausnarinnar og tækifærin sem felast í henni.
7. Ný sýn á hverfi Reykjavíkur
Ævar Harðarson, arkitekt og deildarstjóri Hverfisskipulags Reykjavíkurborgar ræðir um Hverfasjána, stafræna upplýsingagátt.
8. Ferðalag Ísaks frá málþroskavanda til úrlausnar
Listræni leikjahönnuðurinn Embla Vigfúsdóttir og félagssálfræðingurinn Gró Einarsdóttir ræða um hvernig er hægt að beita leikjavæðingu og valhönnun í umbreytingu á skólaþjónustu fyrir börn sem þurfa á stuðningi að halda.
Pallborðsumræður:
Dagur B. Eggertsson borgarstjórinn í Reykjavík.
Paul Bennett: er listrænn stjórnandi IDEO og starfar með Reykjavíkurborg að þjónustuhönnun.
Ragnheiður H. Magnúsdóttir: framkvæmdastjóri Maggar, er sérfræðingur í stafrænni umbreytingu, nýsköpun, breytingastjórnun, stefnu, viðskiptaáætlunum og vöruþróun.
Fjóla María Ágústsdóttir: stýrir pallborðsumræðunum. Hún er breytingastjóri stafrænna umbreytinga hjá Sambandi íslenskra sveitafélaga.
Betri borg fyrir börn
Samhliða málþinginu verður sýningin, Betri borg fyrir börn, opnuð. Um er að ræða upplifunarsýningu þar sem gestir fá að skyggnast á bakvið tjöldin hjá Reykjavíkurborg í ferli þjónustuumbreytingar. Sýningin verður í Norðurbryggju í Hörpu og stendur til 8. maí. Um upplifunarsýningu er að ræða fyrir alla fjölskylduna þar sem gestir eru hvattir til að skoða, snerta og hreyfa við ferlum borgarinnar.