Óskað er eftir tilnefningum til mannréttindaverðlauna 2022

Mannfjöldi í miðborg

Reykjavíkurborgar óskar eftir tilnefningum til mannréttindaverðlauna 2022. Tilnefna má einstaklinga, hópa, félagasamtök eða stofnanir sem á eftirtektarverðan hátt hafa staðið vörð um mannréttindi. 

Tilnefningar ásamt rökstuðningi skulu berast á netfangið mannrettindi@reykjavik.is.

Frestur til að skila tilnefningum er til 5. maí 2022

Handhafi mannréttindaverðlauna Reykjavíkurborgar hlýtur að launum kr. 600.000,-

Verðlaunin verða afhent í Höfða af borgarstjóra Reykjavíkur þann 16. maí í tengslum við mannréttindadag Reykjavíkurborgar.

Markmið mannréttindaverðlaunanna er að vekja athygli á mannréttindastefnu Reykjavíkurborgar og mikilvægi samfélags þar sem mannréttindi eru virt.  

Dómnefnd til verðlaunanna er skipuð af mannréttinda-, nýsköpunar- og lýðræðisráði Reykjavíkurborgar til eins árs í senn. Hana skipa þrír einstaklingar sem hafa haft aðkomu að jafnréttis- og mannréttindamálum í sínum störfum. 

Áður hafa hlotið mannréttindaverðlaun Reykjavíkurborgar:

  • Rótin félag um konur, áföll og vímugjafa 2021
  • Solaris hjálparsamtök fyrir hælisleitendur og flóttafólk á Íslandi 2020
  • Móðurmál Samtök um tvítyngi 2019
  • Samtök kvenna af erlendum uppruna á Íslandi W.O.M.E.N. á Íslandi 2018
  • Með okkar augum 2017
  • Þórunn Ólafsdóttir 2016
  • Frú Ragnheiður 2015
  • Geðhjálp 2014
  • Kvennathvarfið 2013
  • List án landamæra 2012
  • Hinsegin dagar 2011
  • Blátt áfram 2010
  • Rauði Kross Íslands 2009
  • Alþjóðahús 2008