Örugg búseta fyrir alla – kortlagningu lokið á höfuðborgarsvæðinu

Velferð

Fjórar manneskjur við borð á blaðamannafundi

Samstarfsverkefni Húsnæðis og mannvirkjastofnunar (HMS), Alþýðusambands Íslands (ASÍ) og Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins „Örugg búseta fyrir alla” var ýtt úr vör í október s.l, en markmiðið er að kortleggja búsetu í atvinnuhúsnæði. Verkefnið hófst með kortlagningu á höfuðborgarsvæðinu sem nú er lokið og eru ítarlegar niðurstöður að finna í skýrslu sem unnin var í kjölfarið. 

 

Jón Viðar Matthíasson, slökkviliðsstjóri SHS, Regína Valdimarsdóttir, teymisstjóri hjá HMS, Dagur B. Eggertsson borgarstjóri og formaður stjórnar SHS, og Drífa Snædal forseti ASÍ kynntu helstu niðurstöður á blaðamannafundi í Skógarhlíðinni í dag.

Auk þess að kortleggja fjölda íbúa í atvinnuhúsnæði og ástand brunavarna var samsetning íbúanna einnig skoðuð m.t.t. móðurmáls, stöðu á vinnumarkaði og annarra þátta.  Niðurstöður sýna að búseta í atvinnuhúsnæði hefur dregist saman frá því að könnun SHS var gerð árið 2017. Þá var talið að á bilinu 3.500 og 4.000 einstaklingar byggju í atvinnuhúsnæði en í dag er áætlað að íbúarnir séu 1.868 talsins þar af 19 börn. Flestar þessara íbúða eru á svæðum sem eru í umbreytingarferli. Hafa ber í huga að áhrifaþættir í samfélaginu geta haft áhrif á fjölda þeirra sem búa í atvinnuhúsnæði.

Brunavarnir eru á heildina litið betri en gert var ráð fyrir en áætlað er að um helmingur íbúa búi við ásættanlegar brunavarnir. Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins  telur þó þörf á að skoða fjórðung húsnæðisins aftur á næstunni til að yfirfara brunavarnir betur. Tæplega 33% íbúa eru pólskumælandi þar næst koma Íslendingar, tæp 24%. Stór meirihluti, eða næstum 85% íbúa, er á vinnumarkaði. Vísbendingar eru um að Íslendingar eigi oftar atvinnuhúsnæðið sem þeir búa í en fólk af erlendum uppruna sé líklegra til að leigja.  

Búseta í atvinnuhúsnæði - skýrslan í heild.