Örnu Schram minnst

Arna Schram sviðsstjóri á menningar- og ferðamálasviði Reykjavíkurborgar lést langt um aldur fram þann 11. janúar 2022. Borgarstjóri minnist hennar sem kraftmikils og hugmyndaríks stjórnanda sem verður sárt saknað af samstarfsfólki.

Örnu Schram verður minnst í upphafi borgarstjórnarfundar þriðjudaginn 18. janúar. Dagur B. Eggertsson borgarstjóri ritaði minningarorð sem hann deildi með samstarfsfólki Örnu hjá Reykjavíkurborg:

Það var óumræðanlega sorglegt að fá fréttir af andláti Örnu Schram og óvænt. Arna geislaði af lífsvilja, sínum meðfædda metnaði og krafti, líka í harðri baráttu sinni við erfitt krabbamein undanfarin misseri. Hún var bjartsýn um jólin og lagði drög að því að koma til baka að stýra menningar- og ferðamálasviði borgarinnar allt fram á fyrstu daga þessa árs. Meðferðin hafði sannarlega tekið á hana en við deildum öll með henni þeirri bjargföstu trú að þetta gengi vel og hlökkuðum til að fá hana til baka. Þegar við hittumst fyrir jól var hún ekki síður með blik í auga og eftirvæntingu í svipnum, eins og þegar hún gekk til liðs við borgina fyrir fimm árum síðan til að leiða menningar- og ferðamálin, uppfull af nýjum hugmyndum, framtíðarsýn og krafti.



Arna fædd­ist 15. mars árið 1968 í Reykja­vík, dótt­ir Ell­erts B. Schram, fv. rit­stjóra og þing­manns, og Önnu Guðlaug­ar Ásgeirs­dótt­ur tölvu­rit­ara. Hún ólst upp í Vesturbænum. Arna lauk stúdentsprófi frá MR, og BA-gráðu í stjórn­mála­fræði og heim­speki frá Há­skóla Íslands og Kaup­manna­hafn­ar­há­skóla, auk MBA-gráðu með áherslu á stjórn­un, rekst­ur og markaðsmál frá Há­skól­an­um í Reykja­vík.

Arna hóf störf í blaðamennsku ung að árum og starfaði á DV og Morgunblaðinu um árabil og var einnig aðstoðarritstjóri Krónikunnar og fréttastjóri Viðskiptablaðsins.  Hún gegndi stöðum sem varaformaður og formaður Blaðamannafélags Íslands fyrst kvenna. Arna varð upplýsingafulltrúi Kópavogsbæjar árið 2010 og síðar forstöðumaður menningarmála í Kópavogi. Frá 2017 hefur hún verið sviðsstjóri menn­ing­ar- og ferðamála­sviðs Reykja­vík­ur­borg­ar.

Reykjavíkurborg hefur borið einstök gæfa til að laða að sér sterkar konur í stjórnendahóp borgarinnar og Arna Schram var sannarlega ein af þeim. Alltaf vakandi yfir verkefnum dagsins, einbeitt og áræðin og náði ótrúlegum árangri í verkefnum sínum. Borgin, menningarlífið og framtíð hennar fyllti án efa stóran hluta af vökutíma Örnu - og mér kæmi ekki á óvart að menningin og borgin hafi líka komið við sögu í draumum hennar, slík var ástríðan og metnaðurinn. Það var aðeins Birna dóttir hennar og fólkið hennar og fjölskylda og nánir vinir sem skipaði æðra sæti. Um það var ekki um að villast. Missir borgarinnar er mikill en missir Birnu og fjölskyldu Örnu er bæði djúpur, sár og ósanngjarn. Það er þyngra en tárum taki að við fáum ekki notið krafta, samveru, visku og vináttu Örnu lengur. Ég votta þeim mína dýpstu samúð. Blessuð sé minning Örnu Schram.