Opinn fundur um ofbeldi í Reykjavík
Aukið ofbeldi í miðborginni og umræða um öryggi borgarbúa hefur verið ofarlega í samfélagsumræðunni undanfarið. Í tilefni af alþjóðlegum degi mannréttinda býður mannréttinda- og ofbeldisvarnarráð til opins fundar í Iðnó mánudaginn 12. desember undir heitinu Örugg borg – Betra samfélag.
Á fundinum verður meðal annars fjallað um ofbeldisfulla öfgahyggju og breytingar á ofbeldishegðun fólks og möguleg viðbrögð . Til máls taka Margrét Valdimarsdóttir afbrotafræðingur og dósent í lögreglufræðum við Háskólann á Akureyri, Ólafur Páll Jónsson, heimspekingur og prófessor við Háskóla Íslands og Sema Erla Serdaroglu aðjúnkt á menntavísindasviði við Háskóla Íslands.
Fundarstjóri er formaður mannréttinda- og ofbeldisráðs, Magnús Davíð Norðdahl. Öll eru velkomin að taka þátt í fundinum á meðan húsrúm leyfir. Fundurinn er haldinn í Iðnó Vonarstræti 3 mánudaginn 12. desember nk. klukkan 11.30-13.00 og í boði er léttur hádegisverður.