Opið fyrir tilnefningar fyrir framsækið leikskólastarf

Skóli og frístund

Krílakot
  • Viltu vekja athygli á gróskumiklu og framsæknu leikskólastarfi á vegum Reykjavíkurborgar?
  • Veistu af metnaðarfullum þróunarverkefnum, skemmtilegum tilraunum, áhugaverðum samstarfsverkefnum leikskóla við grunnskóla eða frístundamiðstöðvar?
  • Viltu veita starfsfólki í leikskólum Reykjavíkur viðurkenningu og hvatningu?

Allir geta tilnefnt

Auglýst er eftir tilnefningum til hvatningarverðlauna skóla- og frístundaráðs vegna leikskólastarfs í Reykjavík.

Allir geta tilnefnt til verðlaunanna; foreldrar, ömmur og afar, starfsfólk SFS, aðrir borgarstarfsmenn, leikskólar, grunnskólar, frístundamiðstöðvar, aðrar stofnanir og samtök. Við val á verðlaunahöfum verður haft til hliðsjónar að verkefnið sé öðrum til eftirbreytni og hvatning til góðra verka, svo og að fjölbreytt verkefni fái viðurkenningu. Þrjú verkefni sem skara fram úr verða verðlaunuð og fær starfsstaður viðurkenningarskjal og verðlaunagrip til eignar.

Hvatningarverðlaun skóla- og frístundaráðs fyrir framsækið leikskólastarf verða afhent á Degi leikskólans sem haldin verður 6. febrúar 2023.

Skilafrestur tilnefninga er til 15. desember 2022. Sendið tilnefningar hér.