Öll saman í Fossvogsdal á ný

María Helen Eiðsdóttir og Hafdís Guðrún Hilmarsdóttir í Fossvogsskóla

Allir nemendur Fossvogsskóla eru sameinaðir í Fossvogi eftir rakaskemmdir og framkvæmdir sem staðið hafa yfir til að bæta húsnæði skólans. „Við fljúgum á bleiku skýi. Húsnæðið er alveg ótrúlegt, hentugt fyrir teymiskennslu og svo fallegt,“ segir María Helen Eiðsdóttir, aðstoðarskólastjóri í Fossvogsskóla. Ein af þremur byggingum skólans, Austurland, er tilbúin undir skólastarf. Vesturland verður tekin í notkun á næstu dögum en Meginland verður tilbúið næsta haust.

Hönnunin passar námsstefnu skólans

Framkvæmdir við skólann urðu mun viðameiri en upphaflega stóð til þar sem vandinn reyndist meiri en fyrstu úttektir sögðu til um. Á endanum þurfti að gera húsin svo gott sem fokheld. Það hefur þó falið í sér ýmis tækifæri fyrir skólastjórnendur sem fengu tækifæri til að koma að hönnun húsanna í samstarfi við arkitektana. „Við fengum að gera breytingar eins og að hægt sé að opna á milli tveggja stofa. Það hentar okkur mjög vel því við erum teymiskennsluskóli þannig að þetta er sveigjanleiki sem passar við stefnu skólans. Þá var bætt við sköpunarrými til að samræma skólastarfið nútímanum og þróun upplýsingatækni. Þar ætlum við að vera með laserskera, vinylskera og þrívíddarprentara sem nemendur geta unnið með í sambandi við sitt nám.

Síðasta skólaár voru nemendur 5., 6., og 7. bekkjar í Korpuskóla í Grafarvogi en nú geta allir gengið og hjólað í skólann aftur. Til að þetta getið gengið hafa verið gerðar nokkrar tilfæringar. Þegar fer að kólna og íþróttakennsla hættir að geta verið úti verður hún færð inn í Víkina hjá íþróttafélaginu Víkingi. Færanlegar kennslustofur sem kallast Eyland, hýsa 1. og 7. bekk, heimilisfræði og aðstöðu fyrir starfsfólk. Þá er stoðþjónustunni dreift á milli húsanna og nemendur borða hádegismatinn í sínum kennslustofum.

Hlaupa í takt svo að allt gangi upp

Hafdís Guðrún Hilmarsdóttir, skólastjóri er yfir sig ánægð með það sem er tilbúið og þá loka niðurstöðu sem hún sér fram á. „Ég veit ekki í hvaða lukkupotti ég hef lent í, að fá að vera hérna,“ segir Hafdís Guðrún og hlær en hún var ráðinn í skólastjóri í sumar eftir að hafa gengt stöðunni tímabundið frá því í desember. Hafdís og María segjast hafa gengið í takt, ásamt tveimur nýjum deildarstjórum svo að allt hafi mátt ganga upp. Hafdís sem er mikill hlaupari er fljót að breyta því í að þær hlaupi í takt því mikið hefur mætt á stjórnendum undanfarið. „Við finnum að starfsfólkið mætti ótrúlega hlaðið eftir sumarið og er tilbúið í þetta, allir eru jákvæðir,“ segir Hafdís Guðrún og bætir við að þegar eitthvað komi upp á séu allir tilbúnir til að leysa málin saman.

Þær Hafdís Guðrún og María Helen segja að þegar upp verði staðið verði Fossvogsskóli með topp aðstöðu fyrir kennslu. „Áður en þú veist af verðum við besti skóli á Íslandi,“ segir María og Hafdís bætir við „nei besti skóli í heimi,“ og hlær.