Öll komin í sumarfrístund og vinnuskóla
Átján börn sem sótt hafa skóla- og fjölskyldumiðstöð, fyrir flóttafólk frá Úkraínu, sem Reykjavíkurborg hefur rekið undanfarnar vikur hafa öll verið skráð í hefðbundna sumarfrístund. Að auki hafa þrjú ungmenni verið skráð í vinnuskóla borgarinnar.
Munu hefja nám í skólum borgarinnar í haust
Starfsfólk skóla- og fjölskyldumiðstöðvarinnar hafa lagt hjarta og sál í í að taka á móti samlöndum sínum sem flúið hafa hörmulegt stríð. Starfsemin var rekin í frístundamiðstöðinni Tjörninni, frá 28. apríl til 7. júní, þar sem sex úkraínskumælandi starfsmenn sáu um daglega kennslu. Áhersla var á að kenna börnum og foreldrum þeirra íslensku og kynna þau fyrir íslenskri menningu með áherslu á skóla- og frístundastarf. Þar fengu þau líka hjálp við að skrá börnin sín inn í skólakerfið fyrir komandi haust.
Fóru á Kardemommubæinn
Starfsmennirnir sex sem voru hryggjarstykkið í starfseminni hafa verið búsettir á Íslandi í fjölda ára. Þau eru menntaðir kennarar, félagsráðgjafar og eru starfsmenn á leikskólum. Fyrir utan hefðbundna kennslu hafa viðfangsefnin verið margvísleg. Hópurinn heimsótti Hvalasafnið, þau fóru í Fjölskyldu- og húsdýragarðinn, tóku þátt í íþróttadegi ÍSÍ og útivistardegi í Heiðmörk í boði Miðstöðvar um útivist og útinám. Þá fóru þau í Borgarbókasafnið, heimsóttu leikskóla og grunnskóla og Þjóðleikhúsið þar sem þeim var boðið að sjá Kardemommubæinn.
Starfsfólkið lagði sig 150 prósent fram
Skóla- og frístundasvið þakkar öllum þeim sem veitt hafa stuðning. Þar má nefna starfsfólk frístundamiðstöðvarinnar Tjarnarinnar og öllum þeim sem buðu í heimsóknir. Þá ber að þakka sérstaklega einstökum starfsmannahópi fyrir frábært starf. Þau lögðu sig öll fram um að taka vel á móti flóttafólkinu, kenna þeim og styðja. Takk, Oksana, Árni, Katja, Tatjana, Luba og Alina.