Ókyngreind búningsaðstaða og salerni
Borgarráð samþykkti í gær tillögu mannréttinda-, nýsköpunar- og lýðræðisráðs um að tryggja ókyngreind almenningssalerni og búningsaðstöðu í nýju húsnæði borgarinnar og þegar um endurgerð er að ræða.
Ókyngreind salerni og búningsaðstaða ættu að vera í byggingum skóla- og frístundar sem og annars staðar í húsnæði borgarinnar sem opið er almenningi. Mikilvægt er að öll svið Reykjavíkurborgar gangi í takt og hafi sömu sýn er kemur að því að útbúa aðstöðu fyrir öll kyn.
Könnun og samtal starfshóps við skólastjórnendur leiddi í ljós að sumir hinsegin nemendur veigra sér við að nota kyngreinda aðstöðu í skólum og er heilt yfir ákall eftir einstaklingsbundinni salernisaðstöðu í skólum óháð kyni og kynvitund. Þessu til stuðnings eru þegar samþykkt lög um kynrænt sjálfræði sem gera m.a. einstaklingum kleift að skilgreina sitt eigið kyn út frá sinni kynvitund og breyta opinberri kynskráningu sinni, en í boði eru karlkyn, kvenkyn og kynsegin/annað.
Það er mikilvægt að unnið sé út frá því að öll salernis- og búningsaðstaða sé einstaklingsbundin og ókyngreind til að tryggja að öll börn og ungmenni, óháð kyni, kynvitund eða kyneinkennum geti nýtt sér aðstöðuna sem til staðar er án vandræða.
Í samþykktinni kemur fram að Þar sem ekki er hægt að koma fyrir ókyngreindri aðstöðu verður að lágmarki að tryggja að salerni fatlaðs fólks sé einnig aðgengilegt fyrir öll óháð kyni og merkt í samræmi við það.
Umhverfis- og skipulagssvið mun fylgja þessari stefnu borgarinnar eftir og gera kröfu um slíka hönnun ef um nýbyggingar er að ræða og halda utan um breytingar í eldra húsnæði borgarinnar.