Nýtt met slegið í hugmyndasöfnuninni Hverfið mitt 2022-2023
Reykvíkingar slógu met í hugmyndasöfnun Hverfið mitt 2022-2023 sem lauk á miðnætti þann 27. október. Reykjavíkurborg vill þakka öllum þeim sem tóku þátt í hugmyndasöfnuninni að þessu sinni.
Þegar hugmyndasöfnuninni lauk höfðu 1715 hugmynd borist og hafa aldrei fleiri hugmyndir verið sendar inn í hugmyndasöfnuninni. Flest hverfi Reykjavíkur bættu sig í ár sem sýnir að borgarbúar vilja hafa áhrif á sín hverfi og bæta þau.
Aldrei hafa fleiri heimsótt vefinn eða um 72 þúsund íbúar og hátt í 9 þúsund manns skráðu sig inn og tóku þátt í hugmyndasöfnuninni.
Eiríkur Búi Halldórsson, verkefnastjóri, er mjög ánægður með þátttökuna og segir gaman að sjá hversu margar fjölbreyttar og skemmtilegar hugmyndir komu frá borgarbúum. „Íbúar Reykjavíkur eiga hrós skilið fyrir þátttöku sína í verkefninu og fyrir að leggja okkur lið í að gera hverfin í borginni enn betri. Við þökkum öllum kærlega fyrir þátttökuna í ár.“
Næst á dagskrá
Næstu skref í verkefninu eru yfirferð hugmynda hjá fagráði og svo uppstilling kjörseðla fyrir kosningarnar. Það verða allt að 25 hugmyndir í kosningu í hverju hverfi. Þar af 15 vinsælustu hugmyndirnar (af samþykktum hugmyndum) í hugmyndasöfnun og svo velur íbúaráð hverfisins 10 hugmyndir til viðbótar. Þegar búið er að stilla upp 25 hugmyndum í hverju hverfi þá fer fram frumhönnun hugmynda og þær verðmerktar. Kosning á milli hugmynda fer svo fram í september árið 2023.