Nýr samningur um sjúkraflutninga á höfuðborgarsvæðinu

frá vinstri; Runólfur Pálsson, forstjóri Landspítalans, Birgir Finnsson varaslökkvistjóri, Dagur B. Eggertsson borgarstjóri og formaður stjórnar SHS,  Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra,  Jón Viðar Matthíasson, slökkvistjóri og María Heimisdóttir forstjóri Sjúkratryggingar Íslands.

Sjúkratryggingar Íslands (SÍ) og Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins (SHS) hafa gert með sér nýjan samning um sjúkraflutninga á höfuðborgarsvæðinu til næstu fimm ára.

Þjónustusvæði sjúkraflutninga er höfuðborgarsvæðið, en þar er átt við Reykjavík, Kópavog, Garðabæ, Hafnarfjörð, Seltjarnarnes, Mosfellsbæ, Kjósarhrepp og Bláfjallasvæðið en getur undantekningartilvikum verið í þjónustu út fyrir þjónustusvæðið.

Í samningnum eru nýmæli sem miða að því að þróa og efla þjónustuna, með áherslu á aukið samstarf aðila um framkvæmd samningsins, þátttöku SHS í innleiðingu tækni- og fjarheilbrigðislausna og ákvæði sem festir hlutverk vettvangsliða í sessi. Þá er lögð aukin áhersla á gæði og þróun þjónustunnar.

þar er m.a. gert ráð fyrir að árið 2030 verði mögulegt að veita sjúklingi bráðaþjónustu eins fljótt og kostur er hvort sem er á vettvangi eða í sjúkrabíl. Tryggja skal að þjónusta við notendur sé ávallt í fyrirrúmi.

Samningurinn er gerður á grundvelli fjárveitinga til verkefnisins og hann tekur til allra bráðaflutninga auk flutninga til og frá spítala á öldrunarstofnanir.

Stjórn SHS er skipuð framkvæmdastjórum aðildarsveitarfélaganna sex eða fulltrúum þeirra og jafnmörgum til vara. Fulltrúi fjölmennasta sveitarfélagsins, borgarstjórinn í Reykjavík, er formaður stjórnar og skrifaði því undir samninginn.