Ný nálgun á þjónustu Reykjavíkurborgar

Stafræn vegferð Reykjavíkurborgar hlaut nýlega alþjóðlega viðurkenningu og fjárhagsstuðning frá Bloomberg Philanthropies.

Stafræn vegferð Reykjavíkurborgar hlaut nýlega alþjóðlega viðurkenningu og fjárhagsstuðning frá Bloomberg Philanthropies. Borgin er á meðal sex borga í þriggja ára nýsköpunarverkefnið sem ber nafnið “Build back better” og er styrknum ætlað að hraða stafrænni umbreytingu á þjónustu borgarinnar.

Reykjavíkurborg hefur nú þegar staðið fyrir öflugu starfi þegar kemur að stafrænni umbreytingu og hefur þjónustuhönnun verið ríkjandi aðferðafræði í samræmi við þjónustustefnu borgarinnar. En þar eru íbúar og þjónustumiðuð nálgun ávallt í fyrsta sæti. 

Hluti af styrknum er að setja á laggirnar svokallað nýsköpunarteymi (i-teymi) sem styrkt er af Bloomberg, miðstöð opinberrar nýsköpunar við John Hopkins háskóla. i-teymið beitir skapandi aðferðum svo nýta megi lausnir til að bæta þjónustu, m.a. með því að kafa dýpra í notendarannsóknir, upplýsa borgarbúa um framgang verkefnisins, skapa efni á listrænan hátt og margt fleira. Um nýja nálgun er að ræða þegar kemur að umbreytingaverkefnum innan borgarinnar.

i-teymið samanstendur meðal annars af listakonu, félagssálfræðingi og gagnasérfræðingi.

Nýsköpunarteymi umbreytir skóla- og frístundaþjónustu

Nýtt verkefni, Betri borg fyrir börn (BBB) er að fara af stað í öllum hverfum borgarinnar og miðar það að aukinni nærþjónustu við börn, ungmenni og fjölskyldur þeirra í skóla- og frístundastarfi og færa hana út í skólaumhverfið. Ný velferðar-, skóla- og frístundaþjónusta mun m.a. einfalda aðgengi og bæta þar með þjónustu við börn og fjölskyldur í Reykjavík sem þurfa á aðstoð sérfræðinga að halda.

Innan velferðar-, skóla- og frístundaþjónustunnar í Reykjavík starfa fjölmargir sérfræðingar, þeirra á meðal talmeinafræðingar, sálfræðingar, hegðunarráðgjafar, iðjuþjálfar, kennsluráðgjafar, félagsfræðingar o.fl. Verkefni i-teymisins verður að bæta rafrænt aðgengi að þjónustunni svo og vinnuumhverfi sérfræðinganna. Þannig verður umsóknarferli umbreytt í stafrænt form, verkferlar einfaldaðir og upplýsingaflæði milli ólíkra stofnana og fagaðila stórbætt.

Hópurinn kynnir vinnuaðferðir sínar á viðburði með borgarstjóra á fimmtudaginn og vekjum við sérstaka athygli á myndrænni framsetningu verkefnisins sem unnin verður á vegg í vinnurými hópsins af listakonunni Emblu Vigfúsdóttur.

Fimmtudaginn 3. mars klukkan 14:00 í Borgartúni 12-14 (1.hæð Austur) verður opnunarviðburður fyrir ofangreind verkefni.