Ný hópnámskeið í boði fyrir foreldra kvíðinna barna

Dr. Brynjar Halldórsson, Tinna Baldursdóttir og Þórunn Sif Guðlaugsdóttir mastersnemar í sálfræði ásamt Arndísi Þorsteinsdóttur sálfræðingi í Keðjunni.

Nýlega fóru af stað fyrstu hópnámskeið fyrir foreldra barna á aldrinum 5–12 ára sem glíma við hamlandi kvíða. Sálfræðingar á þjónustumiðstöðvum borgarinnar munu notast við sannreynda sálfræðimeðferð sem sýnt hefur verið fram á að beri góðan árangur. Innleiðing aðferðarinnar er mótuð í samvinnu velferðarsviðs, Háskólans í Reykjavík og Heilsugæslunnar.

Vísbendingar um aukinn kvíða meðal barna

Keðjan veitir stuðningsþjónustu fyrir börn, unglinga og fjölskyldur þeirra og heyrir undir velferðarsvið Reykjavíkurborgar. Í gegnum Keðjuna stendur nú yfir innleiðing meðferðarinnar sem hefur fengið nafnið „Hjálp fyrir foreldra kvíðinna barna“.

Talið er að um helmingur allra kvíðaraskana þróist fyrir 12 ára aldur og að hátt í 7% barna greinist með slíkan vanda. Vísbendingar eru um að vandinn hafi aukist að undanförnu og því þykir mikilvægt að bregðast við og leitast við draga úr vanda barnanna með sem  árangursríkustum leiðum.

Foreldrar í öllum borgarhlutum munu geta sótt námskeiðið. Tíu til tólf foreldrar verða í hverjum hópi og læra leiðir til að aðstoða börn sín í að ná tökum á kvíða. Aðferðin sem notast verður við var þróuð í Bretlandi en búið er að laga allt efni að íslenskum aðstæðum.

Rannsókn framkvæmd á árangrinum

Í samstarfi við sérfræðinga á velferðarsviði Reykjavíkurborgar munu tveir mastersnemar í sálfræði í HR framkvæma rannsókn þar sem skoðaður verður árangur og fýsileiki meðferðarinnar. Ábyrgðarmaður rannsóknarinnar er Dr. Brynjar Halldórsson, dósent við Háskólann í Reykjavík, sérfræðingur í klínískri sálfræði við Landspítalann og heiðursrannsakandi við Oxford Háskóla.

Foreldrum er bent á að hafa samband við þjónustumiðstöð síns hverfis óski þeir upplýsinga um námskeiðið og hvaða skilyrði þurfi að uppfylla til að geta sótt um þátttöku.