Norrænir Músíkdagar

Segulharpa eftir Úlf Hansson verður á sýningunni Framúrstefnuleg hljóðfæri í Ráðhúsi Reykjavíkur 11. - 15. október

Í dag hefjast Norrænir Músíkdagar með opnunartónleikum og sýningunni Framúrstefnuleg hljóðfæri í Ráðhúsi Reykjavíkur kl 16:00. Júlía Mogensen og Jari Suominen leika verk eftir Davíð Brynjar Franzson og Johan Svensson á Dórófón og DIMI-A.

Á síðastliðnum árum hefur mikil gróska verið í hönnun tilraunakenndra hljóðfæra. Bæði hafa hljóðfærasmiðir leitast við að breyta og betrumbæta klassísk hljóðfæri en einnig hafa fæðst glæný hljóðfæri jafnt í efnisheiminum og hinum stafræna. Á sýningunni verður leitast við að fanga þessa strauma og stefnur, með áherslu á íslenska hljóðfærasmiði og frumkvöðla.

Viðtal við Halldór Eldjárn sýningarstjóra sýningarinnar Framúrstefnuleg hljóðfæri :

Sýningin Framúrstefnuleg hljóðfæri er á vegum Nordic Music Days og Intelligent Instruments Lab í samstarfi við Tónlistarborgina Reykjavík, og verður opin til 15. október 2022. Þann 13. október milli 15:00 og 18:00 munu hljóðfærasmiðir sýningarinnar vera á svæðinu og taka við spurningum auk þess að gefa sýni-, og hljóðdæmi. Sýningarstjóri er Halldór Eldjárn.

Ekki missa af einstakri sýningu íslenskra hljóðfæra sem hafa vakið athygli á heimsvísu!

Dagskrá Norrænna Músíkdaga er glæsileg, kraftmikil og teygir sig út um alla Reykjavík. Auk hljóðfærasýningarinnar og opnunartónleika verða málþing einnig haldin í Ráðhúsinu á fimmtudag og föstudag. Kynnið ykkur dagskrána hér og sjáumst á Norrænum Músíkdögum!

Tónlistarborgin Reykjavík er stoltur samstarfsaðili Norræna Músíkdaga og kemur einnig að tilurð vinnustofunnar Junge Reporters, þar sem teymi af frábæru ungu tónlistarblaðafólki þræðir og rýnir í tónleika Norrænna Músíkdaga undir handleiðslu þýsku blaðakonunnar Julia Kaiser.  Fylgjast má með skrifum Junge Reporters á meðan á hátíðinni stefndur.

Vinnustofan er á vegum Norrænna Músíkdaga og í samstarfi við Tónlistarborgina Reykjavík, Listaháskóla Íslands, MíT og Fréttastofu RÚV.