Neyðarskýlin í Reykjavík verða opin á morgun
Neyðarskýlin í Reykjavík verða öll opin á morgun, föstudag. Neyðaráætlun í málaflokki heimilislausra með miklar og flóknar þjónustuþarfir hefur verið virkjuð vegna þess mikla kulda sem spáð er á morgun.
Neyðarskýlin eru þrjú, tvö fyrir karlmenn, við Grandagarð og á Lindargötu, og eitt fyrir konur, Konukot í Eskihlíð.
Samkvæmt neyðaráætluninni eru skýlin opin allan sólarhringinn þegar veðurskilyrði eru á þann veg að einstaklingum sé hætt við ofkælingu eða alvarlegum slysum.
Neyðaráætlunin hefur það markmið að tryggja upplýsingaflæði til notenda í ótryggum aðstæðum, undirbúa neyðarskýli fyrir aukna aðsókn og breyttan opnunartíma. Auk þess að upplýsa viðbragðsaðila og aðila sem veita heimilislausum þjónustu þegar neyðaráætlun er virkjuð. Neyðaráætlunin byggir á samvinnu allra viðbragðsaðila í Reykjavík, bráðamóttöku Landspítala Háskólasjúkrahúss, lögreglu, Rauða krossins, forsvarsmanna tjaldsvæða, Vettvangs- og ráðgjafateymis Reykjavíkurborgar (VoRteymis) og neyðarúrræða fyrir heimilislausa.
Áfram er spáð miklum kulda næstu daga og verður staðan því metin dag frá degi.