Neyðarskýli borgarinnar verða opin fram yfir áramót
Sólarhringsopnum verður í neyðarskýlunum í Grandagarði og Lindargötu næstu daga, eða í það minnsta til og með 1. janúar. Konukot, sem er neyðarskýli fyrir konur, verður einnig opið utan opnunartíma Skjólsins en Skjólið er opið hús fyrir konur sem Hjálparstarf kirkjunnar rekur sem er opið á milli 10 og 15 á virkum dögum. Staðan verður endurmetin að morgni 2. janúar.
Tekin hefur verið ákvörðun um að viðbragðsáætlun málaflokks heimilislausra með miklar og flóknar þjónustuþarfir (HMFÞ) verði virk á þessu tímabili. Samkvæmt henni eru skýlin opin allan sólarhringinn þegar veðurskilyrði eru á þann veg að einstaklingum sé hætt við ofkælingu eða alvarlegum slysum. Ákvörðunin er tekin í ljósri slæmrar veðurspár næstu daga.
Viðbragðsáætlunin gerir ráð fyrir samvinnu allra viðbragðsaðila í Reykjavík, bráðamóttöku Landspítala Háskólasjúkrahúss, lögreglu, Rauða krossins, forsvarsmanna tjaldsvæða, Vettvangs- og ráðgjafateymis Reykjavíkurborgar (VoR-teymis) og neyðarúrræða fyrir heimilislausa.