Músíktilraunir 40 ára
Músíktilraunir fagna í ár 40 ára afmæli sínu með nýjum vef Músíktilrauna. Vefurinn var opnaður á dögunum og er gátt fyrir vinsælustu hljómsveitahátíð landsins. Það er Hitt Húsið hjá Reykjavíkurborg sem stendur árlega fyrir hátíðinni til að veita ungu og upprennandi tónlistarfólki tækifæri til að koma sér á framfæri.
Úrslitakvöldið fer fram laugardaginn 2. apríl en þar etja þær sveitir kappi sem hafa komist upp úr undanúrslitum. Veitt verða verðlaun fyrir þrjú efstu sætin, auk einstaklingsverðlauna, viðurkenningu fyrir textagerð og hljómsveit fólksins, sem að þessu sinni er valin í símakosningu. Undanfarin ár hefur úrslitakvöldinu verið útvarpað um land allt á Rás 2, auk þess sem að RÚV streymir beint frá úrslitakvöldinu og vinnur sjónvarpsþátt sem sýndur er síðar.
Músíktilraunir voru fyrst haldnar í Tónabæ árið 1982 og frá upphafi hafa um 50 þúsund manns í 17 þúsund hljómsveitum tekið þátt í hátíðinni. Fjöldi hljómsveita sem hófu ferilinn í Músíktilraunum hafa átt mikilli velgengni að fagna og nægir þar að nefna hljómsveitir eins og Of Monsters and Men, Mínus, Mammút og Botnleðju.
Opið fyrir skráningu
Skráning á hátíðina hófst þann 18. febrúar síðastliðinn og lýkur henni á miðnætti 7. mars. Undanúrslitakvöld verða haldin þann 26., 27., 28. og 29. mars í Norðurljósasal Hörpu.