Menntaverðlaun fyrir framúrskarandi skólastarf
Birtar hafa verið Tilnefningar til Íslensku menntaverðlaunanna 2022 en verðlaunin verða veitt við hátíðlega athöfn í nóvember næstkomandi. Markmið verðlaunanna er að auka veg menntaumbótastarfs og vekja athygli samfélagsins á metnaðarfullu og vönduðu skóla- og frístundastarfi með börnum og unglingum.
Reykvískar tilnefningar
Leikskólinn Rauðhóll í Norðlingaholti er meðal þeirra sem tilnefndir eru til framúrskarandi skólastarfs eða umbætur. Þrír reykvískir kennarar eru tilnefndir til Verðlauna fyrir að vera framúrskarandi kennari. Þeir koma frá Rimaskóla, Réttarholtsskóla og leikskólanum Heiðarborg. Fyrir framúrskarandi þróunarverkefni er hæfileikakeppni skóla- og frístundasviðs Reykjavíkur meðal tilnefndra.
Allar tilnefningar og ný verðlaun
Verðlaunin verða veitt við hátíðlega athöfn í nóvember og mun RÚV sýna frá afhendingunni. Reykjavíkurborg á tilnefningar í flokki framúrskarandi skólastarf eða menntaumbætur, framúrskarandi kennari, og framúrskarandi þróunarverkefni. Á þessu ári verða veitt í fyrsta sinn verðlaun fyrir framúrskarandi iðn- og verkmenntun.
Tilnefndir eru;
A. Framúrskarandi skólastarf eða menntaumbætur
Ein verðlaun eru veitt í þessum flokki, til skóla eða annarrar menntastofnunar, sem stuðlað hefur að menntaumbótum er þykja skara fram úr. Þessir skólar eru tilnefndir:
- Allegro – Suzuki tónlistarskóli
- Leikskólinn Akrasel
- Leikskólinn Rauðhóll
- Tæknimenntaskóli Tækniskólans
B. Framúrskarandi kennari.
Ein verðlaun eru veitt í þessum flokki til kennara sem stuðlað hefur að menntaumbótum sem þykja skara fram úr. Tilnefndir eru þessir kennarar:
- Ásta Kristjana Guðjónsdóttir, kennari við Reykholtsskóla í Bláskógabyggð
- Elísabet Ragnarsdóttir, leikskólanum Heiðarborg, Reykjavík
- Guðríður Sveinsdóttir, kennari við Giljaskóla á Akureyri
- Mikael Marinó Rivera, kennari við Rimaskóla í Reykjavík
- Valdimar Helgason, kennari við Réttarholtsskóla í Reykjavík
C. Framúrskarandi þróunarverkefni
Átak Verðlaun fyrir framúrskarandi þróunarverkefni eru veitt verkefnum sem standast ítrustu gæðakröfur um markmið, leiðir, inntak, mat og kynningu, hafa samfélagslega skírskotun og nýtast til að efla menntun í landinu. Eftirfarandi verkefni eru tilnefnd:
- Átthagafræði í Grunnskóla Snæfellsbæjar
- hæfileikakeppni skóla- og frístundasviðs Reykjavíkur
- Snemmtæk íhlutun með áherslu á málþroska og læsi leikskólabarna. Ásthildur Bj. Snorradóttir og Menntamálastofnun.
D. Framúrskarandi iðn- eða verkmenntun
Ein verðlaun veitt kennara, námsefnishöfundi, skóla- eða menntastofnun fyrir framúrskarandi starf, verk eða framlag til iðn- eða verkmenntunar. Tilnefningar fá:
- Málarabraut Byggingartækniskóla Tækniskólans
- Hársnyrtibraut Verkmenntaskólans á Akureyri
- Átaksverkefnið #kvennastarf – Tækniskólinn í samstarfi við iðn- og verkmenntaskóla.
Einnig upplýsingar á vef stjórnarráðsins