Lýðheilsa borgarbúa

Tvær stelpur leika sér í snjónum á Tjörninni

Reykjavík á Lýðheilsustefnu til ársins 2030 og hefur hún það markmið að skapa umhverfi og aðstæður sem auka jöfnuð, heilsu og hamingju þannig að allir borgarbúar hafi jöfn tækifæri á að njóta lífsins í borg þar sem þeim finnst gott að búa.

Til að fylgjast með lýðheilsu borgarbúa er stuðst við lýðheilsuvísa. Embætti landlæknis gefur einnig árlega út lýðheilsuvísa fyrir valda áhrifaþætti heilbrigðis og er þeim skipt eftir heilbrigðisumdæmum. Reykjavíkurborg hefur nú gefið út lýðheilsuvísa fyrir borgina árið 2021 en vísarnir veita yfirsýn yfir lýðheilsu og auðveldar borginni að greina stöðuna, finna styrkleika og áskoranir og skilja þarfir íbúa þannig að hægt sé að vinna að því að bæta heilsu og líðan borgarbúa á milli ára.

Val á vísum fyrir árið 2021 endurspeglast af þeim gögnum sem til voru ásamt því að hafa til hliðsjónar lýðheilsumat á áhrifum Covid-19 faraldursins á heilsu og líðan í Reykjavík.

Heilsu hrakar en svefn eykst

Vísarnir sýna að þegar börn eru beðin um að meta líkamlega og andlega heilsu fækkar þeim um 10% sem meta hana mjög góða miðað við mælingar árið 2018 og sömu þróun má greina hjá eldri kynslóðum. Streita hjá fullorðnum helst í stað á milli ára en marktækur munur er á einmanaleika kvenna sem eykst á milli ára. Þeim fækkar sem hjóla eða ganga til vinnu en þar má draga þá ályktun að það hafi haft áhrif að heimavinna jókst á milli ára vegna Covid-19. Hvort heimsfaraldur hafði einnig áhrif á svefn er ekki ljóst en hann eykst í öllum aldurshópum.

Þróun umhverfisþátta eins og aðgengi að grænum svæðum, lengd hjóla/göngustíga og fjöldi bekkja hefur aukist á milli ára.

Hægt er að kynna sér betur Lýðheilsuvísa Reykjavíkurborgar 2021 á heimasíðu borgarinnar sem og að skoða lýðheilsuvísa fyrri ára til samanburðar.